Spurning um slípisett/heddpakkningar

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Spurning um slípisett/heddpakkningar

Postby Fenrir » Sat 08. Jan 2011 03:28

Það fór heddpakkning í E34 520i (M20B20) hjá mér nýlega, og mig langar að halda bílnum gangandi.

Getur einhver upplýst mig um hvað er í slípisetti, og hvort það sé allt nauðsynlegt þegar skipt er um heddpakkningu?
Hvað þarf að endurnýja þegar skipt er um heddpakkningu?

Takk
Last edited by Fenrir on Sat 08. Jan 2011 18:19, edited 1 time in total.
Fenrir
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 9
Joined: Sat 19. Jun 2010 17:08

Re: Spurning um slípisett/heddpakkningar

Postby saemi » Sat 08. Jan 2011 16:23

m20 eða m50 vél?

Það er ekki víst að það sé bara pakkningin, gæti líka verið sprungið hedd.

Það sem þú þarft bara NAUÐSYNLEGA er ný heddpakkning. Slípisettið er hins vegar heddpakkning og allar aðrar pakkningar ef þú ætlar að taka heddið allt í gegn. Það er yfirleitt gert þegar heddið er tekið úr, þar sem það kostar ekki svo mikið í viðbót.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Spurning um slípisett/heddpakkningar

Postby Fenrir » Sat 08. Jan 2011 18:24

Það er M20B20 vél.

Þeir sögðu mér á verkstæðinu að það væri bara heddpakkningin, en ég þyrfti að láta fræsa og þrýstiprófa heddið. Veit einhver hvar er ódýrast að gera það á Akureyri?

Varðandi slípisettið, er það þá heddpakkningin og allar aðrar pakkningar sem tengjast heddinu?
Takk fyrir svarið.
Fenrir
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 9
Joined: Sat 19. Jun 2010 17:08

Re: Spurning um slípisett/heddpakkningar

Postby Axel Jóhann » Sat 08. Jan 2011 23:34

Ég á svona hedd handa þér ef þitt er skemmt.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: Spurning um slípisett/heddpakkningar

Postby Fenrir » Sun 09. Jan 2011 11:15

Nú hafa vaknað fleiri spurningar.

Hver er munurinn á því að plana hedd og að renna/slípa hedd? Hvenær á hvað við?

Í mínu tilfelli ofhitnaði vélin með þeim afleiðingum að heddpakkningin fór.
Þarf ég þá að láta þrýstiprófa og mæla skekkju í heddinu, og ef skekkja reynist of mikil(eða bara einhver? hvar liggja mörkin?) þarf ég þá að láta plana, eða bara slípa/renna? Og ef ég þarf að láta plana/slípa/renna, þarf þá þykkri(eða einhvern veginn öðruvísi) heddpakkningu en "standard"?

Og eitt enn, veit einhver hvar best er að gera þetta á Akureyri?
Fenrir
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 9
Joined: Sat 19. Jun 2010 17:08

Re: Spurning um slípisett/heddpakkningar

Postby Lindemann » Sun 09. Jan 2011 12:40

Það er nú oftast talað um bara að plana hedd, þegar það er gert þá er vissulega verið að fræsa af því.

prófaðu að fara á einhverjar vélsmiðjur og athuga hvort þeir vilji gera þetta. annars verðuru bara að senda það suður.

Þú verður að láta þrýstiprófa heddið fyrst að bíllinn ofhitnaði. Það eru þá alveg líkur á því að heddið hafi sprungið.


Ég mæli með ef þú finnur engan á Akureyri til að gera þetta að þú sendir það til Egils vélaverkstæði, miðhrauni 2 Garðabæ.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Re: Spurning um slípisett/heddpakkningar

Postby srr » Sun 09. Jan 2011 12:53

Er Bílaverkstæði Bjarnhéðins ekki með græjur í svona?
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Re: Spurning um slípisett/heddpakkningar

Postby saemi » Sun 09. Jan 2011 18:19

Fenrir wrote:Nú hafa vaknað fleiri spurningar.

Hver er munurinn á því að plana hedd og að renna/slípa hedd? Hvenær á hvað við?

Í mínu tilfelli ofhitnaði vélin með þeim afleiðingum að heddpakkningin fór.
Þarf ég þá að láta þrýstiprófa og mæla skekkju í heddinu, og ef skekkja reynist of mikil(eða bara einhver? hvar liggja mörkin?) þarf ég þá að láta plana, eða bara slípa/renna? Og ef ég þarf að láta plana/slípa/renna, þarf þá þykkri(eða einhvern veginn öðruvísi) heddpakkningu en "standard"?

Og eitt enn, veit einhver hvar best er að gera þetta á Akureyri?


slípa/renna, sami hluturinn að því að ég best veit.

En eins og búið er að segja, þá þarft þú að láta þrýstiprufa heddið til að byrja með til að sjá hvort það er skemmt. Ef það er lí lagi þarf að mæla það með tilliti til þess hvort það þarf að renna það, og renna ef þess þarf. Þeir sem vinna við þetta vita hvort það þarf að renna eða ekki, ég myndi ekki hafa áhyggjur af einvherjum tölum í því tilfelli.

Fræðilega séð þyrftir þú þykkari heddpakkningu til að halda sama þjöppuhlutfalli ef rennt er af heddinu, en fæstir spá í því þar sem þetta er svo lítið og innan skekkjumarka má segja. Þú ættir ekki að lenda í neinum vandamálum með að nota standard heddpakkningu.

Slípisettið er heddpakkningin og allar aðrar pakkningar sem tengjast heddinu. Innsogsgreina og útblástursgreinapakkningar, ventlaþéttingar, ventlalokspakkning, pakkning framan á tímareimahúsið ofl.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Spurning um slípisett/heddpakkningar

Postby Fenrir » Sun 09. Jan 2011 19:30

Þakka ykkur kærlega fyrir þessi svör, ég er margs vísari núna.

Þessi þráður: http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=14003
ruglaði mig aðeins í ríminu, en þetta er komið á hreint núna.
Fenrir
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 9
Joined: Sat 19. Jun 2010 17:08


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests