Page 1 of 1

Taka upp túrbínu úr 320d?

PostPosted: Thu 06. Jan 2011 12:33
by JonHrafn
Tók eftir því þegar ég var að brasa undir bílnum að túrbínan var farin að leka olíu. Losa hosurnar af IC og jú það dropaði smá olía úr honum.

Hringdi í Framtak-Blossa og hann sagði að það væri ekki hægt að taka upp þessar túrbínur og það þyrfti að skipta alveg um hana. Finnst það svoldið sérstakt ... þannig að hefur einhver látið gera upp svona túrbínu?

Re: Taka upp túrbínu úr 320d?

PostPosted: Thu 06. Jan 2011 12:56
by Einarsss
Þessi er amk að selja viðgerða bínu


viewtopic.php?f=12&t=48855

spurning um að senda honum pm og tjekka á hvar þetta er gert

Re: Taka upp túrbínu úr 320d?

PostPosted: Fri 07. Jan 2011 00:22
by gstuning
Auðvitað er hægt að gera við allar túrbínur.
Annars væri ekki hægt að setja þær samann í fyrsta lagi :lol: :lol:

Re: Taka upp túrbínu úr 320d?

PostPosted: Fri 07. Jan 2011 12:05
by JonHrafn
Talaði við Vélaland, það var nú ekkert kjaftæði þar. Svo lengi sem spaðarnir eru ekki byrjaðir að skrapa húsið þá er þetta ekkert mál.

Við opnuðum bínuna í gær og það er varla til slag í henni og ekkert að sjá á húsinu, þannig að ég á ekki von á öðru en hún sé viðgerðarhæf. Fer með hana á eftir í Vélaland,, áætlað 70-90kall. Svoldið skárra en ný turbo.

Re: Taka upp túrbínu úr 320d?

PostPosted: Fri 07. Jan 2011 12:37
by gunnar
En helvíti eru þetta alltaf háar upphæðir. Er þetta svona tímafrekt eða varahlutir svona $$$$$

Re: Taka upp túrbínu úr 320d?

PostPosted: Fri 07. Jan 2011 16:25
by JonHrafn
Ætli uppgerðar settið kosti ekki 25-30þús. Síðan er þetta allt sandblásið og sjænað, síðan þarf að ballancera öxulinn eftir að þetta er allt komið saman.

Re: Taka upp túrbínu úr 320d?

PostPosted: Fri 07. Jan 2011 16:26
by slapi
Ég held að ný bína frá Garret sé á rétt tæp 110 þús

Re: Taka upp túrbínu úr 320d?

PostPosted: Fri 07. Jan 2011 16:30
by JonHrafn
slapi wrote:Ég held að ný bína frá Garret sé á rétt tæp 110 þús


Framtak vildu ólmir selja mér túrbínu á 320þúsund. TB sögðu verðið sirka 180þús . . . Fann kína turbo á ebay, komið hingað á 75þús .

Hvar færðu þessa túrbínu á 110?

Re: Taka upp túrbínu úr 320d?

PostPosted: Fri 07. Jan 2011 16:39
by slapi
Tékkaði á verði í svona bínu um daginn í Kistufelli og þetta var verðið sem ég fékk uppgefið.

Re: Taka upp túrbínu úr 320d?

PostPosted: Fri 07. Jan 2011 16:43
by JonHrafn
Ég þorði ekki að kaupa kína túrbínuna. Við erum með svoleiðis í hiluxinum, á 3.0 turbo diesel úr 4runner. Kostaði 50þús komin hingað á einni viku, 360 í umboðinu. Hún virkar ennþá en hljómar eins og þvottavél sem er að missa sig í að vinda.

Re: Taka upp túrbínu úr 320d?

PostPosted: Sat 08. Jan 2011 09:53
by HelgiP
ég er var að láta taka mína túrbínu fór með bílinn til k kristinsson uppá ásbrú og þar var mín bína tekin upp og það kostaði upptektin 59þúsund og ég held að framtak hafi tekið hana upp ekki 100% en nokkuð viss

Re: Taka upp túrbínu úr 320d?

PostPosted: Sun 09. Jan 2011 21:20
by SævarSig
HelgiP wrote:ég er var að láta taka mína túrbínu fór með bílinn til k kristinsson uppá ásbrú og þar var mín bína tekin upp og það kostaði upptektin 59þúsund og ég held að framtak hafi tekið hana upp ekki 100% en nokkuð viss


Jú passar, fórum með hana í framtak/blossa. Og þeir gátu lagað hana.

Þannig ég skil ekki afhverju þeir segjast ekki getað lagað túrbínuna sem er í bílnum þínum.

Re: Taka upp túrbínu úr 320d?

PostPosted: Fri 14. Jan 2011 18:28
by JonHrafn
Vélaland redduðu þessu á einum degi , reikningurinn ekki nema 68þús :? m. 10% afslátti af vinnu v. f4x4

Fallega drullan sem safnast fyrir í þessum grútarbrennurum, hreinsaði egr ventilinn, soggreinina og skipti um öndunarhúsið á ventlalokinu, allt annar gangur í vélinni :thup: