Skipti um MAF, drepur enn á sér! Hjálp!? [Lagað!]
Sælir og gleðilegt nýtt ár.
E39 1999 540 bíllinn minn fór að láta illa fyrir jól og tók upp á að drepa á sér statt og stöðugt. Það fór versnandi og bíllinn varð nánast alveg óökuhæfur því hann hélst ekki í gangi og krafturinn mjög mismikill. Ég fór í Eðalbíla, lét lesa af honum og niðurstaðan var sú að MAF sensorinn sýndi alveg tvöfalt meira en hann átti að gera (man ekki tölurnar) og Bjarki sagði að ég þyrfti að skipta um MAF.
Ókei, ég útvegaði mér nýjan alvöru Bosch MAF og skipti um áðan. Þegar ég startaði honum hélst hann í gangi, en rosalega var hann tæpur á að drepa á sér. Þegar ég tók smá rúnt til að leyfa bílnum að hita, eins og það skipti máli, þá drap hann á sér við hvert einasta tækifæri þegar ég sleppti bensíngjöfinni.
Í stuttu máli:
MAF sensorinn var í ólagi og ég er núna kominn með nýjan sem *ætti* að vera í lagi. Hvað annað gæti ollið þessu ? Ég tók vídeó af hvernig bíllinn var að láta til að sýna ykkur:
http://www.youtube.com/watch?v=U_T0N00Z9lg
Eru ekki einhverjir snillingar þarna sem kannast við svona stæla ? Endilega spyrjið ef þið þurfið frekari upplýsingar um hegðun bílsins.