Page 1 of 1

kúplings vandamál í E36

PostPosted: Sun 26. Dec 2010 18:02
by Árni S.
jæja fór um daginn 23.des og ræsti e36-inum mínum og ætlaði út að keyra í fyrsta skipti í dágóðan tíma, bíllinn er búinn að standa á samastað fyrir utan húsið mitt í nokkrar vikur....

allavegana þegar bíllinn var búinn að ganga smá ætlaði ég að fara að hreyfa hann... og steig á kúplings pedalann og hann datt bara í gólfið og fer ekki upp aftur nema að ég toga í hann sjálfur... það er ekki hægt að pumpa pedalann hann er bara annaðhvort neðst niðri eða efst

ég ýtti bílnum til í stæðinu og það eru engir sjáanlegir lekar frá kúplingsþrælnum á jörðinni , ég á eftir að tjakka bílinn upp og kíkja á þrælinn.
það eru engir lekar sjáanlegir hjá masternum heldur.

eru einhverjir barkar við pedalann sem geta slitnað ?
hvað getur þetta verið?

Kv. Árni

Re: kúplings vandamál í E36

PostPosted: Sun 26. Dec 2010 18:14
by rockstone
gæti verið slitinn kúplingsbarki

Re: kúplings vandamál í E36

PostPosted: Sun 26. Dec 2010 19:00
by crashed
er ekki vökva kúplíng hjá þér, hefurðu kannað hvort gormurinn gæti verið slitinn hjá petalanum (minnir að það sé gormur þar) er nægur bremsuvökvi í forðabúrinnu, svo á að vera slanga á forðabúrinu sjálfu að framanverðu sem liggur í pedalann, hún gæti verið úr sabandi, svo getur verið að þrællin sé ónítur eða pedala júnitið, þegar pedalinn er niðri geturu þá sett hann í gír :?:

Re: kúplings vandamál í E36

PostPosted: Sun 26. Dec 2010 20:35
by skulzen
gæti svo sem verið vants gufun i kúplingsþrælinum. prufa bara að loft tæma og setja nýjan vökva i :)

Re: kúplings vandamál í E36

PostPosted: Mon 27. Dec 2010 18:42
by ingo_GT
rockstone wrote:gæti verið slitinn kúplingsbarki


Það er vökva kúpling.

Þetta er þrælinn hjá þér,Lenti í þessu á gamla 320 e36 mínu.

Ég lofttæmdi allt upp á nýtt hjá mér og virkaði efti það :)

Re: kúplings vandamál í E36

PostPosted: Sun 09. Jan 2011 21:36
by SævarSig
Það er vökvakúpling í honum, ástæðan fyrir því að pedallinn festist í gólfinu eru sú að það er loft inná kúplingskerfinum.

Þarft að athuga hvort að það sé eitthver sjáanlegur leki á kerfinu, eða hvort að þrællinn sem er við kúplingpedalan inn í bíl sé í lagi, eða niður við gírkassa.

Einnig gæti verið að leiðslan sem kemur frá forðabúri niður í kúplingþrælinn inn í bíl sé ekki í sambandi.