Page 1 of 1

E-39 bremsukerfið bilar í kulda???

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 21:20
by poco
ABS-ið og skriðvörnin detta út, að því er virðist í kuldanum. Hann gerði þetta nokkrum sinnum í fyrra vetur og hætti þegar voraði. Ég var að vona að þetta væri bara "vírus" sem væri farin. En nú í dag gerðist þetta aftur þegar ABS-ið þurfti að vinna smá fyrir mig á ljósum. Eftir það datt kerfið út með tilheyrandi gaumljósum í mælaborðinu.
Þetta dettur svo inn aftur eftir einhverjum reglum sem bíllinn setur.
Kannast e-r við þetta vandamál og ef svo er hvaða lausnir eru í boði?

Re: E-39 bremsukerfið bilar í kulda???

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 21:21
by Alpina
poco wrote:ABS-ið og skriðvörnin detta út, að því er virðist í kuldanum. Hann gerði þetta nokkrum sinnum í fyrra vetur og hætti þegar voraði. Ég var að vona að þetta væri bara "vírus" sem væri farin. En nú í dag gerðist þetta aftur þegar ABS-ið þurfti að vinna smá fyrir mig á ljósum. Eftir það datt kerfið út með tilheyrandi gaumljósum í mælaborðinu.
Þetta dettur svo inn aftur eftir einhverjum reglum sem bíllinn setur.
Kannast e-r við þetta vandamál og ef svo er hvaða lausnir eru í boði?


Er númerið á bílnum OH 880

Re: E-39 bremsukerfið bilar í kulda???

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 21:24
by poco
Nibb

Re: E-39 bremsukerfið bilar í kulda???

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 22:14
by Zed III
ok, þá er það ekki númerið sem er að valda þessu.

Re: E-39 bremsukerfið bilar í kulda???

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 22:42
by crashed
prufaðu að takka alla skynjarana úr við hjólinn og þrífa þá og skoða víra en það er einhver af þessum skynjurum sem er ónítur, og rafmagn skynjarar verða oft með stælar í miklum kulda frekar en hita ef þeir eru að klikka

Re: E-39 bremsukerfið bilar í kulda???

PostPosted: Thu 23. Dec 2010 23:27
by Ampi
Zed III wrote:ok, þá er það ekki númerið sem er að valda þessu.

:lol: :lol: :thup: :thup:

Re: E-39 bremsukerfið bilar í kulda???

PostPosted: Fri 24. Dec 2010 01:02
by Axel Jóhann
prófaðu að taka startkapal, já eitt stykki, og tengja á vélina í ál eða stál og svo hinn endan í boddý, sjáðu hvort það lagist eitthvað, settu svo i gang.

Re: E-39 bremsukerfið bilar í kulda???

PostPosted: Fri 24. Dec 2010 09:05
by Alpina
Zed III wrote:ok, þá er það ekki númerið sem er að valda þessu.


En Þessi OH 880 sem vitnað er í .. er fyrrum bíll sem ég átti ,,gríðarlega vel búinn og ákvað ég að setja ABS off takka í hann og talaði við Eðal-bjarka sem þá var master-mechanic hjá B&L,, hann sýndi þessari hugmynd mikinn áhuga og fannst þetta svo krefjandi og metnaðarfullt verkefni að hann HEIMTAÐI að gera þetta frítt :shock: ,, bara sökum challenge áskorunarinnar

ok.. hann skoðaði teikningarnar og hafði svo samband ,, Jæja -->> svona gerum við þetta

fyrir neðan miðstöðvar digitalinstrument cluster er borð með optional möguleikum á ..hiti í sætum.. asc gardina í afturglugga osfrv, .. það að var einn reitur laus svo hann keypti DSC-takka ((reyna að hafa þetta oem look)) og þetta var svo smellt í og alles

OK,, hvernig virkar þetta.......... jú þetta tekur ABS úr sambandi .. en einnig hraðamælinn og ASC-T,,

hvernig fer ABS aftur í samband .. jú þú drepur á bílnum.. bíður í 5 sekúndur og þá heyrist smá klikk VOILA

back to normal..

Nú spyr einhver.. AFHVERJU að gera þetta......... jú veturinn 99-00 var gífurlegt magn af snjó og slabbi á götum borgarinnar og í saltblönduðum snjó þá virkar ASC og ABS ekki skít ,,
ASC-T er hægt að taka úr sambandi en ekki ABS ........ svo ÞESSVEGNA lét ég gera þetta

Er nokkuð öruggur um að ég sé sá fyrsti sem lét útbúa svona í E39 .. og jafnvel BMW yfirhöfuð í heiminum 8) 8) 8)

Re: E-39 bremsukerfið bilar í kulda???

PostPosted: Fri 24. Dec 2010 17:51
by Axel Jóhann
Bravó :lol:

Re: E-39 bremsukerfið bilar í kulda???

PostPosted: Sat 25. Dec 2010 16:45
by gunnar
Það þarf klárlega að stoppa Sveinbjörn upp og varðveita þegar hann fer yfir móðuna miklu... Svo mikið er víst! :lol: :lol:

Re: E-39 bremsukerfið bilar í kulda???

PostPosted: Sat 25. Dec 2010 16:55
by Zed III
gunnar wrote:Það þarf klárlega að stoppa Sveinbjörn upp og varðveita þegar hann fer yfir móðuna miklu... Svo mikið er víst! :lol: :lol:


jafnvel fyrr svo það gleymist ekki.

Re: E-39 bremsukerfið bilar í kulda???

PostPosted: Thu 30. Dec 2010 11:11
by Angelic0-
ekki ólíklegt að hjólalegur / ABS skynjarar séu orðnir slappir...

Re: E-39 bremsukerfið bilar í kulda???

PostPosted: Thu 30. Dec 2010 11:43
by ///MR HUNG
gunnar wrote:Það þarf klárlega að stoppa Sveinbjörn upp og varðveita þegar hann fer yfir móðuna miklu... Svo mikið er víst! :lol: :lol:

Þá held ég að við þurfum að fara að hafa hraðann á :shock:

Re: E-39 bremsukerfið bilar í kulda???

PostPosted: Thu 30. Dec 2010 13:02
by Jón Ragnar
Zed III wrote:
gunnar wrote:Það þarf klárlega að stoppa Sveinbjörn upp og varðveita þegar hann fer yfir móðuna miklu... Svo mikið er víst! :lol: :lol:


jafnvel fyrr svo það gleymist ekki.



:rofl:

besta komment sem ég hef séð lengi hjá ykkur báðum :lol: