Page 1 of 4
Bensíndælurnar....., Kominn í lag, TB að skíta!!!!

Posted:
Tue 21. Dec 2010 14:37
by Ívarbj
Sælir,
Í lok maí á þessu ári þá fór bensíndælan hjá mér og var henni skipt út og gerðu TB menn það. Um miðjan október gerðist það aftur, bíllinn vildi ekki fara í gang og fanst mér þetta vera eins vesen og þegar að bensíndælan fór.
Ég fer með bílinn í TB og þeir kíkja á þetta, þeir segja að bensínsælan sé farin svo það var skipt um hana aftur.
Núna í gær gerðist þetta aftur, bíllinn vildi ekki fara í gang. Ég hringi í TB og segji þeim frá þessu og sá sem ég tala við segir að það sé eitthvað sem er að skemma bensíndæluna.
(Nei ég hef ekki verið að keira bílinn bensínlítinn, hef ekki séð bensínljósið síðan að það var skipt um dæluna í fyrsta skiptið)
Mér leist ekkert á blikuna þegar að hann sagði mér að eitthvað væri að skemma dæluna en hann hafði enga hugmynd hvað það gæti verið.
Ég fór og leitaði að þessu á bimmerforums.com og sá þar marga linka þar sem menn höfðu verið að lenda í svipuðu veseni en það var enginn sem útskýrði hvað vandamálið var.
Ef það er einhver sem hefur lent í sama veseni eða veit um lausn við þessu þá væri hún vel þegin

Re: Bensíndælurnar fara hver á eftir annarri!

Posted:
Tue 21. Dec 2010 15:17
by GunniT
Er ekki bara svarf í tankinum sem er að skemma bensíndælurnar??
Re: Bensíndælurnar fara hver á eftir annarri!

Posted:
Tue 21. Dec 2010 17:53
by JonHrafn
Það er nú ekkert annað í boði en að taka tankin undan og reyna hreinsa úr honum, það eru líklegast einhver óhreinindi í honum. Hefði samt haldið að það væri grófsía sem ætti að taka svoleiðis.
Re: Bensíndælurnar fara hver á eftir annarri!

Posted:
Tue 21. Dec 2010 18:56
by Ívarbj
Já, ég las einmitt um þetta á bimmerforums.com að menn voru að tala um að það gæti verið óhreinindi í tanknum eða skítug sía sem olli því að skemma dælurnar.
Re: Bensíndælurnar fara hver á eftir annarri!

Posted:
Tue 21. Dec 2010 20:42
by Birgir Sig
ég er að lenda í þessu sama í e30 hjá mér,, og hef ekki hugmynd um hvað er i gangi,
en ég ætla að prófa að skipta um bensíntank og og rör,
ég hugsa að það se bara e-ð svarf eða e-ð,
en annars hef ég heyrt um að "kramin" beygluð bensínrör hafi skemmt dælur með þrengingum,,
Re: Bensíndælurnar fara hver á eftir annarri!

Posted:
Wed 22. Dec 2010 01:05
by Ívarbj
Birgir Sig wrote:ég er að lenda í þessu sama í e30 hjá mér,, og hef ekki hugmynd um hvað er i gangi,
en ég ætla að prófa að skipta um bensíntank og og rör,
ég hugsa að það se bara e-ð svarf eða e-ð,
en annars hef ég heyrt um að "kramin" beygluð bensínrör hafi skemmt dælur með þrengingum,,
Já, þetta er leiðindarmál þar sem þessar dælur eru ekkert gefins.
Re: Bensíndælurnar fara hver á eftir annarri!

Posted:
Wed 22. Dec 2010 18:23
by slapi
Hvernig dælur eru að fara í bílinn?
Hvað er gömul bensínsía í honum ?
Re: Bensíndælurnar fara hver á eftir annarri!

Posted:
Wed 22. Dec 2010 18:46
by Alpina
slapi wrote:Hvernig dælur eru að fara í bílinn?
Hvað er gömul bensínsía í honum ?
Góð ábending
Re: Bensíndælurnar fara hver á eftir annarri!

Posted:
Wed 22. Dec 2010 23:15
by Lindemann
Mér finnst lykilatriðið vera hvernig dælur þeir eru að setja í bílinn!
það eru margir óorginal hlutir sem er verið að flytja inn í dag sem er bara algjört rusl, athugaðu það mál.
Annars getur þetta náttúrulega verið eitthvað af ofantöldu, með drullu í tank og þessháttar.
Re: Bensíndælurnar fara hver á eftir annarri!

Posted:
Thu 23. Dec 2010 03:34
by Ívarbj
Er ekki viss um síuna en grunar að hún sé orginal.
Bíllinn var ekki ekinn nema rétt undir 100.000 þegar að fyrsta dælan fór, en ég lét TB sjá alfarið um að laga þessa bilun og þeir tóku ekki fram á reikningnum að þeir hafi skipt um síuna, hvorki í fyrra né seinna skiptið.
Ætla samt rétt að vona að þeir hafi sett OEM dælu í bílinn.
Annars þarf ég bara að tala við þá eftir áramót um það hvort þeir hafi skipt um síu þar sem þeir eru víst í fríi.
Re: Bensíndælurnar fara hver á eftir annarri!

Posted:
Thu 23. Dec 2010 16:46
by ömmudriver
Ég er einmitt með svipað vandamál á borðinu.
Original bensíndælan fór í blæjunni fyrir einu og hálfu ári og var þá keypt ný bensíndæla hjá TB og hefur virkað eðlilega þangað til núna um daginn, þá neitaði blæjan að fara í gang og það kom ekki bofs frá eins og hálfs árs gömlu bensíndælunni
Ég ætla að kíkja þetta núna í Janúar og sé þá hvort að þetta sé ekki örugglega dælan.
EDIT: Tekið skal fram að tankurinn var tandurhreinn að innan þegar skipt var um dælu og hef ég alltaf fyllt tankinn af bensíni þegar ég hef sett á hann, enn tankurinn er búinn að vera hálffullur af bensíni á meðan hann hefur staðið í geymslu.
Re: Bensíndælurnar fara hver á eftir annarri!

Posted:
Thu 23. Dec 2010 17:46
by crashed
farið að hljóma eins og tb sé að selja ykkur handónítar dælur, ef þið takkið dælurnar úr taknum og lísið ofaní hann og skoðið síurnar þá eigið þið að sjá svarfið ef það er eithvað, en mikið af þessum eftir market dælum eru með rusl gúmíum sem þola ekki bensínið í leingri tíma
Re: Bensíndælurnar fara hver á eftir annarri!

Posted:
Thu 23. Dec 2010 18:05
by Benzari
Enn ein (fölnuð) rósin í hnappagatið hjá bifreid.hrís
TB

Re: Bensíndælurnar fara hver á eftir annarri!

Posted:
Thu 23. Dec 2010 20:41
by Axel Jóhann
Bara benda fólki á, að ég lenti í nákvæmlega sama með 525 hjá mér þegar ég ætlaði að setja hann í gang, þá var bensíndælu relayið ansi tregt að taka við sér, það þurfti alveg þónokkrar tilraunir til þess að fá hann í gang, svo endaði ég á því að skipta um relay og voila, vandamálið úr sögunni. Þannig það þarf ekki endilega að vera TB að kenna, allavega athuga þetta fyrst.
Re: Bensíndælurnar fara hver á eftir annarri!

Posted:
Thu 23. Dec 2010 20:55
by Alpina
Benzari wrote:Ein ein (fölnuð) rósin í hnappagatið hjá bifreid.
hrísTB

Gat ekki annað en glott
