Að fjarlægja hvarfakútana úr dísel bimma

Posted:
Wed 08. Dec 2010 16:35
by ppp
Ég hef heyrt að maður sé að græða smá snerpu (og jafnvel eyðslu) á því að taka þessa kúta burt. Þ.e.a.s. að túrbóið sé fljótara upp og þvíumlíkt -- en ég var að spá, er þetta bara plug & play dæmi að whippa þessu úr, eða mun maður lenda í einhverju braski með skynjara og slíkt og þarf kannski að fara í einhverjar hakk lausnir til að losna við villuboð? Eða er tölvunni alveg sama?
Og er kannski eitthvað annað varhugavert við að láta taka þá úr hjá sér og setja bara rör í staðin?
Re: Að fjarlægja hvarfakútana úr dísel bimma

Posted:
Wed 08. Dec 2010 16:43
by skulzen
Ef þú ert tekinn ekki með hvarfa i næstu skoðun þá ertu i djúpum

Re: Að fjarlægja hvarfakútana úr dísel bimma

Posted:
Wed 08. Dec 2010 16:57
by JonHrafn
Diesel bílar þurfa ekki að vera með hvarfakúta. EN, þeir þurfa standast reykþykkni mælingu. Hvarfakútarnir í diesel eru líka sótsíur.
Get alveg staðfest það að snerpan eykst, bílinn fær meira boost á lægri snúning, eyðslan í langkeyrslu minnkar, en eyðslan í átökum eykst.
Plug & play, það má nú varla kalla það það. Þú þarft að fjarlægja sirka 1,5m af pústkerfinu, frá túrbínu aftur fyrir aftari kút. Skera flangsinn af sem boltast á túrbínuna, sjóða hann á nýja rörið. Síðan þarf að beygja nýja rörið með nokkrum beygjum og sjóða það við restina af afturhluta orginal kerfisins. Skera styrkinarnar af gamla kerfinu, og sjóða á nýja rörið, þær boltast síðan í blokkina minnir mig.
Gallinn við þetta er sótið, ef maður stendur hann kaldan úr kyrrstöðu þá kemur svart strik í götuna, og ef maður botnar bíilnn eftir að hafa dólað í smá tíma þá kemur ágætis mökkur meðan pústið hreinsast. Fór samt í gegnum skoðun langt undir mörkum, bara passa stíga bílinn hressilega rétt áður en þú rennir inn á planið í skoðun.
Re: Að fjarlægja hvarfakútana úr dísel bimma

Posted:
Wed 08. Dec 2010 16:59
by JonHrafn
Svona leit þetta út hálf klárað

Re: Að fjarlægja hvarfakútana úr dísel bimma

Posted:
Wed 08. Dec 2010 21:11
by ppp
Takk fyrir svarið. En já ég meinti nú bara plug&play fyrir pústverkstæði sem stendur í svona löguðu daginn inn og út.

En ég tek þessu þá þannig sem að þú hafir ekki lent í neinu veseni með tölvuna eða púst sensora eftir að þessir kútar fóru?
Re: Að fjarlægja hvarfakútana úr dísel bimma

Posted:
Wed 08. Dec 2010 23:32
by JonHrafn
skv realoem átti að vera skynjari ofan í fyrsta kútin, strax eftir túrbínu, en þar var engin skynjari þegar ég fór að rífa. En ekkert tölvuvesen.