Page 1 of 3

finna út hvort olíudæla sé í lægi?

PostPosted: Sun 05. Dec 2010 22:11
by Joibs
hvernig finnur maður það út? er kanski bara best að teingja stútinn á henni í vatn og snúa tannhjólinu með borvél? :?
vill nefnilega helst að fá að vita hvort mín sé í lægi áður en ég kaupi mér aðra :roll:

Re: finna út hvort olíudæla sé í lægi?

PostPosted: Mon 06. Dec 2010 00:18
by Axel Jóhann
Þín er ekki í lagi, hringdu í þann sem bauð þér hana notaða um daginn og keyptu hana! Þetta er ekki hlutur sem þú villt vera óviss með!!!!!

Re: finna út hvort olíudæla sé í lægi?

PostPosted: Mon 06. Dec 2010 00:25
by Joibs
hann átti hana síðan ekki lengur, þannig gat ekki keift hana af honum :?
en ég sé ekki að það sé neitt að sjálfri dæluni, það er hægt að skipta um (eða sjóða) þetta eina stikki sem brotnaði þannig ef sjálf dælan er ekkieitthvað ónít þá bíst ég nú við að það ætti að vera hægt að laga þetta auðveldlega :|

Re: finna út hvort olíudæla sé í lægi?

PostPosted: Mon 06. Dec 2010 00:34
by Axel Jóhann
Nei, það er ekki hægt, fáðu aðra notaða.

Re: finna út hvort olíudæla sé í lægi?

PostPosted: Mon 06. Dec 2010 00:44
by GunniT
Þetta er alveg spurnig hvort þú sért ekki alveg í jafn vondum/góðum málum með þessa dælu soðna eins og notaða dælu sem enginn veit neitt um..

Re: finna út hvort olíudæla sé í lægi?

PostPosted: Mon 06. Dec 2010 00:58
by Joibs
akkurat... ég ætti nú að geta fundið út hvort það sé í lægi með dæluna eithverneginn, sé ekki tilganginn að kaupa allt heila klabbið ef það er síðan barra þetta stikki sem er að :evil:
þetta sem er brotið er nú bara rör sem er með "neti" í botninum og það er bara víst hægt að taka það af :lol:

Re: finna út hvort olíudæla sé í lægi?

PostPosted: Mon 06. Dec 2010 12:28
by siggir
Þetta er ekki spurning um hvort hún getur dælt vatni uppúr fötu eða ekki. Dælan þarf að halda ákveðnum þrýstingi á olíunni. Og ef þú ert ekki viss um að hún geri það skaltu finna aðra. Það getur sparað þér stóru peningana seinna meir.

Re: finna út hvort olíudæla sé í lægi?

PostPosted: Mon 06. Dec 2010 15:50
by Joibs
ja.. er nefnilerga búinn að taka hana smá í sundur og sé ekki að það sé neitt skemt þarna inní, þannig mig grunar alveg að þetta ætti að vera í lægi :?

en er ekki eithver sem getur tékka á svona fyrir mann? :angel:

Re: finna út hvort olíudæla sé í lægi?

PostPosted: Mon 06. Dec 2010 16:17
by Haffi
Ef þú átt ekki efni á annari dælu þá hefuru svo sannarlega ekki efni á viðgerðinni sem kæmi í kjölfarið á því að dælan virki ekki.

Re: finna út hvort olíudæla sé í lægi?

PostPosted: Mon 06. Dec 2010 18:30
by Joibs
enda vill ég ekki setja þetta saman nema að ég geti fundið út hvort að dælan sé í lægi, þannig ef ég fæ notaða dælu þá þirfi ég hvortið er að láta tékka á henni :wink:

þannig vantar að vita hvar ég get farið með dæluna í mælingu

Re: finna út hvort olíudæla sé í lægi?

PostPosted: Mon 06. Dec 2010 18:51
by siggir
Var hún í lagi þegar þú tókst hana úr?

Re: finna út hvort olíudæla sé í lægi?

PostPosted: Mon 06. Dec 2010 19:16
by jon mar
siggir wrote:Var hún í lagi þegar þú tókst hana úr?



hún var brotin þegar hann tók hana úr.....


það er bara EITT í þessari stöðu, og það er ekki að gera við gömlu dæluna.

Re: finna út hvort olíudæla sé í lægi?

PostPosted: Mon 06. Dec 2010 20:50
by Joibs
olíu dælan er ekki brotin!!!!
heldur litla sían sem er á henni brotnaði af... það er hægt að taka þetta stikki af og ég er búinn að því!!
og sé ekki neitt að dæluni þannig langar að láta tékka á henni þannig ég sé ekki að eiða peningum sem ég þarf síðan kanski ekkert að eiða ef það gerðist ekkert við sjálfa dæluna :evil:

myndir af þessu:

Image
Image

Re: finna út hvort olíudæla sé í lægi?

PostPosted: Mon 06. Dec 2010 21:03
by slapi
afhverju brotnaði hún , fékk hún högg á sig ?

Re: finna út hvort olíudæla sé í lægi?

PostPosted: Mon 06. Dec 2010 21:11
by BMW_Owner
sko.. reyndar þó þú takir dæluna í sundur og leitir að eitthverju sem á að vera ónýtt þá er þetta svo fíngerður búnaður að þú sæir líklegast aldrei mun á nýrri og gamalli dælu nema sú gamla sé bara handónýt.. en ef þú ert viss um að ekkert brot úr þessu sem skemmdist hafi komist inní dæluna og rispað hana að innan(þannig að hún geti misst þrýsing á litlum snúning) þá sé ég ekkert að því að skipta bara um síuhlutann á henni..
EN vertu viss um það að þegar þú ert búinn að setja dæluna í vélina og vélina í bílinn þá myndi ég mæla með því að taka háspennukeflið úr sambandi og starta vélinni og sjá hvort að olíuljósið fari og ef það fer ekki á "eðlilegum" tíma s.s eitthvað um 3sek held ég þá skaltu prófa þettaeinu sinni enn og ef það fer ekki þá skaltu gleyma þessari dælu og ekki reyna setja bílinn í gang því
þá ertu bara dæmdur til að skemma hringi og stangar/höfuðlegur. Og treystu mér það kostar "aðeins" meira að laga það en þetta..

bottom line þetta gæti gengið hjá þér og sparað þér eitthverja þúsara en þetta gæti líka stútað vélinni..your car your choice :thup: