Page 1 of 2

Þétta hurð

PostPosted: Thu 02. Dec 2010 20:30
by Hrannar E.
Málið er að farþegahurðinn frammí hjá mér leikur neðst... það er það lekur vatn inn alveg neðst á hurðinni og var frekar mikil bleyta þegar ég tók eftir þessu. Er búinn að þurrka alla bleytu úr bílnum en hef ekki hugmynd um hvernig ég gæti þétt þetta ? Þetta lekur einhvernveginn framhjá gúmmíinu sem er á hurðinni skil samt enganveginn hvernig. Þannig að ef einhver veit hvað ég get gert í þessu væri vel þegið að fá einhver svör :)

Re: Þétta hurð

PostPosted: Thu 02. Dec 2010 21:26
by Mr. Jones
Er ekki bara drenið á hurðini stífla og hurðin orðin hálffull af vatni sem síðan lekur inn ?

Re: Þétta hurð

PostPosted: Thu 02. Dec 2010 22:44
by Hrannar E.
Nú er ég ekki alveg að fylgja þér ? Allavega er ég nokkuð viss um það að hurðin sé ekki full af vanti

Re: Þétta hurð

PostPosted: Fri 03. Dec 2010 00:03
by Mr. Jones
Hrannar E. wrote:Nú er ég ekki alveg að fylgja þér ? Allavega er ég nokkuð viss um það að hurðin sé ekki full af vanti

Lenti í því á einhverjum bíl að götin neðaná hurðini sem eiga að hleypa út vatni sem kemst inn í hurðina niður með rúðuni voru stífluð og komið það mikið vatn í hurðina að það var farið að leka niður með hurðarspjaldinu og inní bíl og virtist koma að utan við fyrstu sýn

Re: Þétta hurð

PostPosted: Fri 03. Dec 2010 09:42
by Hrannar E.
Okei kíkji á það þó að mér finnist það ólíklegt ... Ekkert annað sem gæti verið ?

Re: Þétta hurð

PostPosted: Fri 03. Dec 2010 15:13
by Hrannar E.
Skoðaði þetta neðst á hurðinni eru tappar þar tók annan þeirra úr og skoðaði þetta og lýtur út fyrir að það sé allt í lagi þarna ... veit enginnhvað ég get gert?

Re: Þétta hurð

PostPosted: Fri 03. Dec 2010 18:41
by Hreiðar
Ég myndi bara láta kíkja á þetta ef ég væri þú, finnur þú alveg að hurðin sé þétt? Þegar þú ert á ferð, kemur enginn blástur inn um lítið rif eða eitthvað? Getur þetta ekki bara verið eiithvað rif í gúmmíinu hjá hurðinni?

Re: Þétta hurð

PostPosted: Fri 03. Dec 2010 20:07
by Hrannar E.
Hvar get ég látið athuga þetta veistu það ? En finn ekki fyrir neinu á ferð sko

Re: Þétta hurð

PostPosted: Fri 03. Dec 2010 21:32
by Hreiðar
Bara uppí tb www.bifreid.is þeir geta liklegast tekkað a þessu hja þer. myndi láta laga þetta áður en þetta fer að skemma eitthvað

Re: Þétta hurð

PostPosted: Fri 03. Dec 2010 23:26
by Hrannar E.
Það er einmitt það sem ég er stressaður yfir að þetta fari að skemma einhvað....

Re: Þétta hurð

PostPosted: Tue 07. Dec 2010 12:49
by Hrannar E.
Skoðaði þetta betur og það kom í ljós að þetta lekur með listanum sem er efst á hurðinni hjá speglinum... frekar léleg lýsing hjá mér veit ekki hvernig ég get lýst þessu betur. Væri best fyrir mig bara að skipta um þennan lista eða ?

Re: Þétta hurð

PostPosted: Tue 07. Dec 2010 19:13
by Zed III
myndir hjálpa en lítur listinn út fyrir að vera skemmdur ?

Re: Þétta hurð

PostPosted: Tue 07. Dec 2010 20:23
by Hrannar E.
Skal reyna að redda myndum af þessu. En þegar ég skoða listann lýtur hann út fyrir að vera alveg í lagi

Re: Þétta hurð

PostPosted: Tue 07. Dec 2010 21:25
by Zed III
er þá hurðin kannski skökk í falsinu ?

Re: Þétta hurð

PostPosted: Tue 07. Dec 2010 23:45
by Hrannar E.
Nei tel litlar líkur á því lýtur allt út eins og það á að vera...