Sælir, ég er með vandamál með m20 í e30 325ix.
Bíllinn sleit viftureim um daginn, innri reimina sem keyrir áfram vatnsdæluna, bíllinn hitnaði eitthvað og var búinn að vera leiðinlegur með hitann síðustu mínúturnar áður en hann sleit reimina. Ég var ekki á bílnum sjálfur þannig að ég veit ekki hversu mikið hann hitnaði. Ég skipti um reimina og bíllinn var keyrður í nokkra daga eftirá og svo til í lagi með hann. Svo fór hann að hita sig og át/lak vatni svo ég þurfti að bæta á hann alveg heilum helling, líklega rúmlega 4 lítrum.
Hann nær ekki að hita miðstöðina eins og hann er núna, og hitamælirinn er rokkandi frá normal og uppí tæplega rautt þegar stoppað er, en sígur svo stundum þegar keyrt er en stundum helst hann hátt. Hann hefur ekki farið alveg í botn svo ég viti til ennþá..
Ég hefði haldið að fyrst hann týndi vatninu þá væri heddpakkningin farin, en þar sem miðstöðin hitnar ekki og efri hosan frá vatnskassanum hitnar ekki en neðri hosan hitnar hvort þetta gæti verið vatnsdæla eða jafnvel vatnslás sem er að bögga mig. Ég finn ekkert í olíunni og finnst hann ekki vera að brenna vatni, lyktar ekki þannig. Lítið hægt að marka hvítan reyk í þessum kulda, allir bílar reykja þá. Hann týnir ekki vatni í eftir að bætt var á hann, ekki miklu amk, bíllinn var ekki keyrður mikið eftir það.
Svo, áður en ég rýk til og versla eitthvað sem ég þarf ekki, er eitthvað sem ykkur dettur í hug, einhver einkenni sem ég get leitað eftir?



