Page 1 of 1

Leiðindi með miðstöð í e39

PostPosted: Wed 24. Nov 2010 08:35
by slezz
Sælir kraftsmenn

Ég er með e39 sem tók uppá því fyrir mánuði síðan að vera með leiðindi í sambandi við hitann úr miðstöðinni.

Þetta lýsir sér þannig: bíllinn hitnar eðlilega samkvæmt hitamælir, en miðstöðin er ekki sammála honum, því hún fer ekki að blása heitu næstum strax, gerir það í rauninni ekki fyrr en ég læt bílinn snúast helling. Svo aftur á móti þá blæs hún aldrei heitu þegar ég stoppa...eða er stopp. Þetta er voðalega funky og hundleiðinlegt, sérstaklega á svona köldum morgnum.
Mér var bent á að þetta gæti verið loft, ég losaði um allan þrýsting á skrúfunni á vatnskassanum. Það var allavega hætt að koma almennilegar "bubblur" með vatninu sem kom.

Ég bara nenni ekki að fara með bílinn til Eðalbíla fyrir svona ef þetta er svo smotterí, þannig mín spurning er sú: hefur einhver lent í þessu? veit einhver hvað þetta gæti verið ?

Með fyrirfram þökk,
Rúnar

Re: Leiðindi með miðstöð í e39

PostPosted: Wed 24. Nov 2010 08:45
by Tasken
eins og ég var buinn að segja þér þá er þetta örugglega loft á honum skal bara kíkja á að reyna að loftæma með þér

Re: Leiðindi með miðstöð í e39

PostPosted: Wed 24. Nov 2010 08:47
by slezz
úff það væri vel þegið, ég er virkilega að pæla í því að taka strætó á morgnanna, það er svo fáránlega kalt í bílnum alltaf! Þrátt fyrir það að vera með hita í sætum sem VIRKAR! :)

Re: Leiðindi með miðstöð í e39

PostPosted: Wed 24. Nov 2010 09:30
by Zed III
slezz wrote:úff það væri vel þegið, ég er virkilega að pæla í því að taka strætó á morgnanna, það er svo fáránlega kalt í bílnum alltaf! Þrátt fyrir það að vera með hita í sætum sem VIRKAR! :)


Þú ert að spá í að taka strætó en vilt ekki fara með bílinn í tékk :?

Re: Leiðindi með miðstöð í e39

PostPosted: Wed 24. Nov 2010 09:41
by slezz
haha þessi orð voru bara gripin á lofti, síðasta sem ég myndi gera er að láta sjá mig í strætó..

Re: Leiðindi með miðstöð í e39

PostPosted: Wed 24. Nov 2010 19:34
by Tasken
jæja nú geturðu farið með bros á vör í vinnuna á morgun með hita á miðstöðinni

þurfti einfaldlega að bæta á hann og lofttæma

Re: Leiðindi með miðstöð í e39

PostPosted: Thu 25. Nov 2010 17:51
by raxions
Tasken wrote:jæja nú geturðu farið með bros á vör í vinnuna á morgun með hita á miðstöðinni

þurfti einfaldlega að bæta á hann og lofttæma


Nákvæmlega sama vandamál hrjáir minn. Er hægt að láta gera þetta á smurstöð?

Er þetta kannski svo einfalt að maður ætti að gera þetta sjálfur?

Re: Leiðindi með miðstöð í e39

PostPosted: Thu 25. Nov 2010 18:27
by raxions
Sweet, vandamál leyst.

Djöfull er netið æðislegt :mrgreen: