Sælir kraftsmenn
Ég er með e39 sem tók uppá því fyrir mánuði síðan að vera með leiðindi í sambandi við hitann úr miðstöðinni.
Þetta lýsir sér þannig: bíllinn hitnar eðlilega samkvæmt hitamælir, en miðstöðin er ekki sammála honum, því hún fer ekki að blása heitu næstum strax, gerir það í rauninni ekki fyrr en ég læt bílinn snúast helling. Svo aftur á móti þá blæs hún aldrei heitu þegar ég stoppa...eða er stopp. Þetta er voðalega funky og hundleiðinlegt, sérstaklega á svona köldum morgnum.
Mér var bent á að þetta gæti verið loft, ég losaði um allan þrýsting á skrúfunni á vatnskassanum. Það var allavega hætt að koma almennilegar "bubblur" með vatninu sem kom.
Ég bara nenni ekki að fara með bílinn til Eðalbíla fyrir svona ef þetta er svo smotterí, þannig mín spurning er sú: hefur einhver lent í þessu? veit einhver hvað þetta gæti verið ?
Með fyrirfram þökk,
Rúnar


