Page 1 of 1

Spólvörn & Skriðvörn (Vesen) e46

PostPosted: Fri 05. Nov 2010 09:08
by Hreiðar
Bíllinn minn á það til að taka spólvörnina og skriðvörnina af sjálfviljugur. Þá koma bæði ljósin upp á mælaborðinu og ég get ekki sett varnirnar á aftur. Þegar ég slekk á bílnum þá fara ljósin og varnirnar eru aftur byrjaðar að virka. En það gerist líka nokkrum sinnum að ljósin verða ennþá kveikt og varninar virka ekkert.

Hefur einhver annar lent í þessu, er þetta eitthvað að gerast í þessum e46 bílum? Gætið ykkur dottið eitthvað í hug hvað þetta er? Bara svona að spurja áður en ég fer með hann í tb.

kveðja.

Re: Spólvörn & Skriðvörn (Vesen) e46

PostPosted: Fri 05. Nov 2010 09:33
by Aron Fridrik
kemur ABS ljós líka ?

ef svo er þá er ABS skynjari líklegast farinn að klikka og þess vegna virkar spólvörnin og skriðvörnin ekki.

Re: Spólvörn & Skriðvörn (Vesen) e46

PostPosted: Fri 05. Nov 2010 12:22
by Hreiðar
Það eru bara þessi tvö ljós sem koma, svo þegar ég ýti á DSC takkann þá gerist ekkert. Stundum virkar spól- og skirðvarnirnar en stundum ekki, ef þær virka þá eru auðvitað ljósin ekki á, en svo ákveður hann að taka þær af og ljósin koma. Fáranlegt. Líklegast einhver skynjari.

Mynd tekin af netinu:
Image

Re: Spólvörn & Skriðvörn (Vesen) e46

PostPosted: Fri 05. Nov 2010 20:44
by JonHrafn
ABS skynjararnir eru hluti af spólvarnar og skriðvarnarkerfinu. Byrjaðu á að láta lesa af bílnum.

Re: Spólvörn & Skriðvörn (Vesen) e46

PostPosted: Fri 05. Nov 2010 21:07
by markusk
Ég fékk þessi ljós upp á mælaborðið hjá mér fyrir nokkru síðan, reyndar á E90 bíl... Kom í ljós að einhver þéttir var ónýtur í tölvunni sem sér um ABS og skriðvörnina. B&L sögðu að ný tölva kostaði yfir 500 þús án vinnu og að BMW í þýskalandi væru tilbúnir að slá af 30%.

Talaði við snillingana hjá Eðalbílum og þeir sendu tölvuna út til UK, þar sem þetta unit var "rebuildað". Tók ca. 10 daga og allt virkar í dag eðlilega. Nú er þetta unit með 2 ára ábyrgð frá gaurunum í UK.

Villuboðin þegar ég lét lesa af honum var: 5E20 - HYDRAULIC PRESSURE SENSOR INTERNAL

Vonandi ert þú ekki að lenda í þessu sama, þetta er víst mjög algengt í E90 bílunum :(

Re: Spólvörn & Skriðvörn (Vesen) e46

PostPosted: Fri 05. Nov 2010 22:22
by JonHrafn
markusk wrote:Ég fékk þessi ljós upp á mælaborðið hjá mér fyrir nokkru síðan, reyndar á E90 bíl... Kom í ljós að einhver þéttir var ónýtur í tölvunni sem sér um ABS og skriðvörnina. B&L sögðu að ný tölva kostaði yfir 500 þús án vinnu og að BMW í þýskalandi væru tilbúnir að slá af 30%.

Talaði við snillingana hjá Eðalbílum og þeir sendu tölvuna út til UK, þar sem þetta unit var "rebuildað". Tók ca. 10 daga og allt virkar í dag eðlilega. Nú er þetta unit með 2 ára ábyrgð frá gaurunum í UK.

Villuboðin þegar ég lét lesa af honum var: 5E20 - HYDRAULIC PRESSURE SENSOR INTERNAL

Vonandi ert þú ekki að lenda í þessu sama, þetta er víst mjög algengt í E90 bílunum :(


Þetta kom fyrir í x5 sem ég þekki til, nú í eigu kraftverja. Þaes abs tölvan. Vonum að þetta sé bara skynjari :þ

Re: Spólvörn & Skriðvörn (Vesen) e46

PostPosted: Sat 06. Nov 2010 11:42
by Hreiðar
Ég lét tb lesa af honum einu sinni þegar þetta kom í fyrsta skipti, þetta hvarf ljós svo í langan tíma en þetta var að koma upp núna og mjög oft. Þá var hann held ég að tala um einhvern skynjara. Ég er að fara með hann á mánudaginn að láta lesa af honum. Vonandi er þetta ekki eitthvað mega dýrt dæmi :thdown:

Re: Spólvörn & Skriðvörn (Vesen) e46

PostPosted: Mon 08. Nov 2010 03:41
by lacoste
Það nákvæmlega sama kom upp hjá félaga mínum sem á e46. Í því tilfelli var þetta stýrisgormaskynjari, sem er einhver gaur inní stýrismaskínunni sem að skynjar hvert og hvernig þú beygjir og sendir það í skriðvarnartölvuna.

Re: Spólvörn & Skriðvörn (Vesen) e46

PostPosted: Mon 08. Nov 2010 10:29
by Hreiðar
lacoste wrote:Það nákvæmlega sama kom upp hjá félaga mínum sem á e46. Í því tilfelli var þetta stýrisgormaskynjari, sem er einhver gaur inní stýrismaskínunni sem að skynjar hvert og hvernig þú beygjir og sendir það í skriðvarnartölvuna.


Það var einmitt það sem þeir í tb voru að tala um. Veistu hvað þetta kostaði?

Re: Spólvörn & Skriðvörn (Vesen) e46

PostPosted: Mon 08. Nov 2010 20:18
by lacoste
Hreiðar wrote:
lacoste wrote:Það nákvæmlega sama kom upp hjá félaga mínum sem á e46. Í því tilfelli var þetta stýrisgormaskynjari, sem er einhver gaur inní stýrismaskínunni sem að skynjar hvert og hvernig þú beygjir og sendir það í skriðvarnartölvuna.


Það var einmitt það sem þeir í tb voru að tala um. Veistu hvað þetta kostaði?


Skynjarinn var ekki dýr, ehv i kringum 5-10þusund. En það er víst dálítil aðgerð að skipta um þetta, þessi gaur er djúpt inní mælaborðinu.