Page 1 of 2
swirl flaps í 320d

Posted:
Wed 03. Nov 2010 13:34
by HelgiP
fyrir þá sem ekki hafa lent í veseni með swirl flaps í 320d ættuð að kanna það sem fyrst áður en það veldur miklu tjóni á vélinni hjá ykkur.ég varð of seinn að kanna það og þurfti að láta taka upp vélina því að þessi flipi losnaði og fór inní vélina og eyðilagði það stimpil nr 2 og mikið meira en það og var það feitur reikningur fyrir því.það sem þig getið gert er að opna inntakið og taka þá úr eða fara á verkstæði hjá ingvari helga,eðalbílum eða tb og beðið þá um það. þetta er víst algengur galli í bmw díselvélinni 2lítra þar sem ég hef lesið mér um.ég veit ekki um 3lítra vélina hvort hún sé með sama vesen myndi bara kanna það því þetta verður ekki bætt af neinum aðila nema hann sé í ábyrgð vildi bara láta vita af þessu ef ekkert hefur verið talað um þetta og verið frjálsir að bæta eitthvað í þetta ef það vantar eitthvað í þetta;)
Re: swirl flaps í 320d

Posted:
Wed 03. Nov 2010 17:40
by Hrannar E.
Ertu þá að tala um að hafa þetta ekkert í eða ?
Re: swirl flaps í 320d

Posted:
Wed 03. Nov 2010 18:00
by JonHrafn
Já menn eru að fjarlægja þetta alveg bara. Ég og Uni bróðir opnuðum vélina á mínum og skoðuðum þetta, þessir flappar sýndu engin merki um að vera fara neitt þannig að við lokuðum þessu bara aftur. Járn skrúfa sem heldur flappanum á öxli á til að losna úr.
Er nokkuð viss um að í e90 bílunum séu þessir flappar orðnir úr plasti og eru því ekki að valda sama tjóni.
Re: swirl flaps í 320d

Posted:
Wed 03. Nov 2010 19:57
by Hrannar E.
JonHrafn wrote:Já menn eru að fjarlægja þetta alveg bara. Ég og Uni bróðir opnuðum vélina á mínum og skoðuðum þetta, þessir flappar sýndu engin merki um að vera fara neitt þannig að við lokuðum þessu bara aftur. Járn skrúfa sem heldur flappanum á öxli á til að losna úr.
Er nokkuð viss um að í e90 bílunum séu þessir flappar orðnir úr plasti og eru því ekki að valda sama tjóni.
okei semsagt ekkert sem ég þarf að hafa áhyggjur af ?
Re: swirl flaps í 320d

Posted:
Wed 03. Nov 2010 19:59
by ///MR HUNG
Jú rífa þetta úr.
Það er einn stopp út af þessu núna.
Re: swirl flaps í 320d

Posted:
Wed 03. Nov 2010 20:53
by Saxi
Stel kannski aðeins þræðinum og spyr hvort einhver viti til að þetta hrjái 3.0 vélina líka?
Re: swirl flaps í 320d

Posted:
Thu 04. Nov 2010 07:30
by ppp
Saxi wrote:Stel kannski aðeins þræðinum og spyr hvort einhver viti til að þetta hrjái 3.0 vélina líka?
Já þetta gerir það. M57 með sjálfskiptingu eru með swirl flaps sem eiga til með að losna og skemma.
Re: swirl flaps í 320d

Posted:
Thu 04. Nov 2010 11:44
by Saxi
ppp wrote:Saxi wrote:Stel kannski aðeins þræðinum og spyr hvort einhver viti til að þetta hrjái 3.0 vélina líka?
Já þetta gerir það. M57 með sjálfskiptingu eru með swirl flaps sem eiga til með að losna og skemma.
Jæja ætli maður noti þá ekki jólafríið í að rífa þetta úr. Mér sýnist að menn hafi gert það án teljandi vandræða.
Re: swirl flaps í 320d

Posted:
Thu 04. Nov 2010 22:46
by slapi
Ég mæli eindregið með að menn rífi þetta úr þó það virðist vera í lagi þegar þeir taka þetta í sundur , því um leið og hann brotnar öðru meginn á hann greiða leið uppúr hinum öxlinum og rennir sér niður , skiptir engu máli þó blöðin séu úr plasti , BMW segist vera búnir að laga þetta vandamál með N57 en allt fyrir það er risk factor.
Síðan setja bara góða skrúfu og kítti í gatið sem verður við að taka öxlana úr.
Better safe than sorry
Re: swirl flaps í 320d

Posted:
Thu 04. Nov 2010 23:38
by Hrannar E.
Getur ekki einhver komið með góða lýsingu eða myndirhvernig maður gerir þetta ? Eða er kannski betra að láta gera þetta fyrir sig ef maður er óreyndur í svona ?
Re: swirl flaps í 320d

Posted:
Fri 05. Nov 2010 00:06
by ///MR HUNG
Re: swirl flaps í 320d

Posted:
Fri 05. Nov 2010 08:52
by fart
Ég var búinn að vara við þessu, því miður hefur þú líklega ekki séð þennan póst, enda gamall.
viewtopic.php?f=16&t=37613&hilit=swirl+flaps
Re: swirl flaps í 320d

Posted:
Sat 06. Nov 2010 19:20
by Angelic0-
ppp wrote:Saxi wrote:Stel kannski aðeins þræðinum og spyr hvort einhver viti til að þetta hrjái 3.0 vélina líka?
Já þetta gerir það. M57 með sjálfskiptingu eru með swirl flaps sem eiga til með að losna og skemma.
Gott að vita þetta, þetta verður þá rifið úr hjá mér

Re: swirl flaps í 320d

Posted:
Sun 07. Nov 2010 11:45
by ppp
Já þetta var það fyrsta sem ég gerði eftir að ég keypti minn. Mér fannst þvílíkt óþægilegt að vita að þessari tímasprengju.
Re: swirl flaps í 320d

Posted:
Sun 07. Nov 2010 13:36
by Hrannar E.
Veit einhver hvað þeir í Eðalbílum eða Tb myndu taka fyrir að gera þetta ?