Page 1 of 1

Felgur af E39 á Z4?

PostPosted: Mon 01. Nov 2010 14:00
by DiddiTa
Núna er ég algjör auli í svona offset og centerbore dæmi

Passa felgur af E39 (t.d. style 66 mtec felgurnar) á Z4 með einhverju móti eða er þetta bara no no ? :oops:

Re: Felgur af E39 á Z4?

PostPosted: Mon 01. Nov 2010 14:43
by Danni
E39 Style 66 voru gerðar með ET20 offset í 8" breiddinni og ET26 í 9" breiddinni.

Image

Þetta eru 8" breiðar 17" style 5 með offsett ET20 á 205/45 að framan og 215/40 að aftan.

Myndi looka svipað, en þú verður að passa að kaupa miðjuhringi líka. Centerbore í Z4 er 72,6mm en í E39 er það 74,1mm, svo þú myndir lenda í alveg svakalega miklum titringi án miðjuhringja og ef málmurinn er veikur og þú keyrir of lengi þannig þá gæturðu endað með miðjuskakkar felgur.

Færð miðjuhringi í N1 Fellsmúla fyrir eitthvað undir 5000 kall. Farðu tímanlega samt því ef þeir eru ekki til þar þá gæti verið að afgreiðslumaðurinn sendir þig á N1 lagerinn, ég lenti í því um daginn þegar ég fékk miðjuhringi fyrir M Countour á E34 hjá mér, sem koma undan E39.

Re: Felgur af E39 á Z4?

PostPosted: Mon 01. Nov 2010 14:54
by DiddiTa
Ég veit ekki hvað ég myndi gera án þín Danni ! :lol: Takk fyrir öll svörin :thup: