Page 1 of 1

Facelift ljós í pre-facelift E39

PostPosted: Thu 28. Oct 2010 17:25
by DiddiTa
Hefur einhver skipt um svona? Tengin passa klárlega ekki úr gömlu, stefnuljósin eru ekkert mál en þarf ég að klippa tengin af nýju ljósunum og splæsa þessu eitthvað saman við gömlu tengin?

Re: Facelift ljós í pre-facelift E39

PostPosted: Thu 28. Oct 2010 18:13
by Danni
Það er hægt að fá millistykki á tengin. Fylgja þannig með þegar þú kaupir þetta nýtt, eða gerði það allavega þegar ég keypti þetta nýtt á fyrri 540 hjá mér.

Getur athugað með TB, eða B&L.

Re: Facelift ljós í pre-facelift E39

PostPosted: Thu 28. Oct 2010 18:29
by DiddiTa
Snilld takk! :thup: Prufa að hringja í þá á morgun :)

Re: Facelift ljós í pre-facelift E39

PostPosted: Fri 29. Oct 2010 09:41
by bErio
Ég var einmitt að leita að þessu sjálfur þegar ég var að vinna í minum
svo var þetta bara á ljósatengjunum að framan þannig ég slapp
TB eiga þetta ekki til en var ekki buinn að checka með B&L ( IH )
Prófaði að reyna googla þetta nokkrusinnum en ekkert gékk..
Skal hafa augun opin

Re: Facelift ljós í pre-facelift E39

PostPosted: Fri 29. Oct 2010 11:13
by DiddiTa
Já ég hringdi í bæði TB og IH í morgun, ekki til :cry:

Re: Facelift ljós í pre-facelift E39

PostPosted: Fri 29. Oct 2010 13:00
by Danni
Já, það er alveg skelfilega erfitt að finna þetta. En ég held að ég sé búinn að finna þetta.

http://bmwfans.info/parts/catalog/63120024985/#set

Þetta er innihald retrofit pakkans fyrir facelift ljósin í pre-facelift bíl.

63 12 0 025 497 Adapter, bulb socket, parking light 2
63 12 0 025 499 Adapter, bulb socket, turn indicator 2

Ég HELD að þetta eru partanúmerin fyrir millistykkin, dettur í rauninni ekkert annað í hug. Þarft að sjálfsögðu að panta tvennt af hverju. Ég veit ekki hvort það er hægt að fara í B&L og panta partanúmer úr pakka, en það hlýtur bara að vera fyrst það eru sér partanúmer fyrir þetta.

Re: Facelift ljós í pre-facelift E39

PostPosted: Wed 03. Nov 2010 22:51
by geirisk8
Ég uppfærði í facelift í e39 540 bílnum mínum með ljósum frá Ümnitza og það var bara plug n' play! Xenonið er mun betra en OEM og angel eyes drulluflott. Ég þurfi að búa til tengingu fyrir stefnuljósin en það var skítlétt og tók 5 mín. Mæli með ljósunum frá þeim.