Page 1 of 2

M50b25 með leiðindi

PostPosted: Wed 27. Oct 2010 20:25
by Jón Ragnar
Hef orðið var við að 325 hjá mér er stundum eins og hann missi allt afl

Gerist ekkert þegar ég stíg á gjöfina og snúningurinn fer bara rólega niður þótt ég sé í gír,

Drepur ekki á sér, stundum dugar að drepa á honum og kveikja á honum aftur, virkar flott stundum.

En stundum er hann alveg lengi svona.

Ég fór í Eðalbíla og þá var talað um óhljóð í 2 spíssum, skipti um þá og hann er ennþá eins.

Eru þetta háspennukeflin?

Re: M50b25 með leiðindi

PostPosted: Wed 27. Oct 2010 20:34
by Axel Jóhann
Gerist þetta frekar þegar hann er orðinn heitur?

Re: M50b25 með leiðindi

PostPosted: Wed 27. Oct 2010 20:55
by Maddi..
Þetta er bara akkúrat það sem hrjáði minn...
Fann aldrei hvað þetta var, en svona fúsk virtist hafa hætt eftir að ég lagaði jarðtengin.. var komin tæring í þau.
Veit ekki hvernig hann hegðar sér núna, en síðast þegar ég talaði við nýja eigandann er hann bara þægur og ekkert kok og vesen.

Re: M50b25 með leiðindi

PostPosted: Wed 27. Oct 2010 22:19
by Jón Ragnar
Axel Jóhann wrote:Gerist þetta frekar þegar hann er orðinn heitur?



Frekar var við það já þá


Líka eftir átök

Re: M50b25 með leiðindi

PostPosted: Wed 27. Oct 2010 23:00
by skulzen
Útskýringarnar minna mig á það þegar 325'an hjá mér var svona svipuð.
þá var það að tölvan fékk ekki nægan straum, skifti þvi um kapallin frá geymi fram i húdd þá var allt gúdd to go :thup:

Re: M50b25 með leiðindi

PostPosted: Thu 28. Oct 2010 00:34
by Axel Jóhann
Eins og nokkrir benda á, athuga jarðtengingar og ef það er ekki þá eru þetta háspennukefli. Ég á nokkur auka sem við getum prófað :)

Re: M50b25 með leiðindi

PostPosted: Thu 28. Oct 2010 00:47
by tinni77
Ég sá þig áðan (var að rölta fyrir aftan þig) og þá varstu greinilega nýfarinn heiman að, og þá lét hann svona leiðinlega, hvorki heitur, né eftir átök :?

Re: M50b25 með leiðindi

PostPosted: Thu 28. Oct 2010 09:07
by Jón Ragnar
Já það er ennþá ljótur lausagangur í honum.

Er búinn að troubleshoota næstum allt sem kemur að því

ætla að ath jarðtenginguna þegar ég kemst í það um helgina.

Þessi mótor er e-ð með leiðindi við mig :|

Re: M50b25 með leiðindi

PostPosted: Thu 28. Oct 2010 11:16
by auðun
þetta er eins í mínum, sérstaklega ef ég svindla og spóla eða tek á honum frekar köldum þá er oft eins og eftir átökin að hann sé bara máttlaus og krafturinn kemur í rykkjum ef ég´gef honum. en oftast er nóg að drepa á honum.

Re: M50b25 með leiðindi

PostPosted: Fri 29. Oct 2010 13:05
by Jón Ragnar
Ennþá lætur hann svona illa..

Geta þetta verið stíflaðir hvarfar?

Re: M50b25 með leiðindi

PostPosted: Fri 29. Oct 2010 14:39
by Einarsss
John Rogers wrote:Ennþá lætur hann svona illa..

Geta þetta verið stíflaðir hvarfar?



Skera þá í burtu bara! :)

Re: M50b25 með leiðindi

PostPosted: Fri 29. Oct 2010 14:42
by Jón Ragnar
redda skoðun fyrst svo skera þá í burtu :)

Re: M50b25 með leiðindi

PostPosted: Fri 29. Oct 2010 15:09
by Axel Jóhann
Hvaða árgerð er hann?

Re: M50b25 með leiðindi

PostPosted: Fri 29. Oct 2010 15:13
by Jón Ragnar
1996

Re: M50b25 með leiðindi

PostPosted: Fri 29. Oct 2010 16:27
by auðun
bögg er það ekki 95 sem hvarfarnir koma inn. getur líka tekið þá undan og hreinsað innan úr þeim. kústskaft í gegn. og vonað að það hringli ekki í þeim.