Page 1 of 1

Miðstöð í e46

PostPosted: Tue 26. Oct 2010 17:49
by sigridurma
Miðstöðin í bílnum hjá mér er byrjuð að væla. Hún vælir þegar bíllinn er kaldur og þegar ég hef hana á 2 eða meira og þegar ég er með hitann á ca meðalhita. Og því meira sem ég hækka í henni þá fer hún að væla hærra, vælið hættir svo þegar hann er búinn að vera heitur í smá tíma, er miðstöðin að deyja?

Þetta er e46 316 '00.

Re: Miðstöð í e46

PostPosted: Tue 02. Nov 2010 20:40
by Nökkvi
Þetta er líka svona stundum hjá mér í kulda.
Spurði Bjarka hjá Eðalbílum út í þetta þegar ég fór með bílinn í inspection hjá þeim. Það er þekkt vandamál í elstu árgerðunum af E46 að það vælir í miðstöðvarmótornum. Gætir reynt að opna þetta og smyrja eða reyna að redda nýjum mótor.
Getur einhver sagt okkur hvort það sé sami miðstöðvarmótorinn í öllum E46 eða er þetta mismunandi eftir gerðum, miðstöðvum og árgerðum?