Page 1 of 1

Ömurlegur hægagangur og kraftlaus m73

PostPosted: Thu 21. Oct 2010 19:19
by Vilmar
Jæja, hefur eitthver lent í þessu?

Allt í einu, þegar ég startaði bílnum, gekk hann á svona 450-500 rpm og fór bara ekkert ofar þó svo maður botnaði drusluna.. við erum að tala um að skjaldbaka myndi taka framúr mér því bíllinn rétt lullaðist áfram.

Eftir þetta er ég búinn að skipta um cps og einn maf sensor, og búinn að prufa að taka hinn maf úr sambandi, en lagast lítið við þetta, einnig er ég búinn að skipta um báða fremri súrefnisskynjarana (reyndar 1000 km áður en þetta gerist).

Nokkur ljós eru á mælaborðinu og voru þar fyrir, það eru ABS, traction ljósið, bremsuljósið og airbag ljósið.

Með fyrir fram þökk, Vilmar

Re: Ömurlegur hægagangur og kraftlaus m73

PostPosted: Thu 21. Oct 2010 23:54
by ömmudriver
Farðu með bílinn til snillingana í Eðalbílum.

Re: Ömurlegur hægagangur og kraftlaus m73

PostPosted: Fri 22. Oct 2010 01:10
by Vilmar
Því miður er ansi langt fyrir mig að fara með hann þangað, ca 450 km.

Ég fór með hann eitthverntíman til þeirra með bílinn í lestur, en þeir náðu ekki sambandi við tölvuna. Þeir sögðu að þetta gæti verið tækjabúnaðurinn hjá þeim því þetta gerðist áður með annann bíl, en ef það er ekki, hvað gæti þá verið að? afhverju ná þeir ekki sambandi?

Lennti líka í þessu með e32 740 uppí TB, þeir náðu ekki sambandi.

Bara að spá :)

Re: Ömurlegur hægagangur og kraftlaus m73

PostPosted: Fri 22. Oct 2010 08:19
by JOGA
Það lýsti sér svipað þegar að hvarfakútur fór hjá mér í E39. Brotnaði eitthvað innihaldið og stíflaði allt.
Ættir að heyra hvort það sé eitthvað laust í honum með því að dingla létt í hann.

Eru nokkuð gjarnir á að fara.

En þetta geta verið milljón aðrir hlutir. Held til dæmis að bilaður knastásskynjari lýsi sér ekkert ósvipað.
Best að reyna að láta Eðalmenn kíkja á þetta ef þú hefur tök á því að koma honum í bæinn.

Re: Ömurlegur hægagangur og kraftlaus m73

PostPosted: Fri 22. Oct 2010 15:33
by Vilmar
Þeir segja það sama á BF með hvarfakútinn, ætla að kíkja á það.

Er búinn að skipta um knastásskynjarann eftir að hann bilaði, lagaðist ekki :(