Page 1 of 2
Hvernig á maður að losa brotinn felgubolta?

Posted:
Thu 21. Oct 2010 18:58
by Fatandre
Jæjæ. Var að enda við að brjóta einn felgubolta við að setja vetrarganginn undir. Hvernig næ ég þessu helvíti núna úr.
Re: Hvernig á maður að losa brotinn felgubolta?

Posted:
Thu 21. Oct 2010 19:05
by fart
bora gat og setja öfugugga í, þá skrúfast þetta léttilega úr,
Re: Hvernig á maður að losa brotinn felgubolta?

Posted:
Thu 21. Oct 2010 19:13
by Fatandre
Einhver sem kann þetta og gæti gert?
Re: Hvernig á maður að losa brotinn felgubolta?

Posted:
Thu 21. Oct 2010 19:35
by birkire
snerirðu ekki bara hausinn af ? felguna af og bremsudisk ef þú þarft og nota massaða vise grip með grófu biti og snúa hann úr..
virkaði vel þegar ég lenti í þessu
Re: Hvernig á maður að losa brotinn felgubolta?

Posted:
Thu 21. Oct 2010 19:35
by Axel Jóhann
Mæli með að þú farir í TB, Þeir elska svona viðgerðir þar.
Re: Hvernig á maður að losa brotinn felgubolta?

Posted:
Thu 21. Oct 2010 19:58
by Fatandre
Hvar er TB og hvað taka þeir fyrir svona?
Re: Hvernig á maður að losa brotinn felgubolta?

Posted:
Thu 21. Oct 2010 20:19
by Einarsss
Fatandre wrote:Hvar er TB og hvað taka þeir fyrir svona?
Tækniþjónusta bifreiða
http://www.bifreid.is
Re: Hvernig á maður að losa brotinn felgubolta?

Posted:
Thu 21. Oct 2010 20:19
by rockstone
Fatandre wrote:Hvar er TB og hvað taka þeir fyrir svona?
hafnarfirði sömu húsaröð og skoðunarstöðin
Re: Hvernig á maður að losa brotinn felgubolta?

Posted:
Thu 21. Oct 2010 20:21
by Fatandre
já ok, veit nuna hvar það er.
Re: Hvernig á maður að losa brotinn felgubolta?

Posted:
Thu 21. Oct 2010 23:43
by ingo_GT
Taka diskinn af og nota töng til að losa hann úr
Re: Hvernig á maður að losa brotinn felgubolta?

Posted:
Fri 22. Oct 2010 10:10
by Zed III
Axel Jóhann wrote:Mæli með að þú farir í TB, Þeir elska svona viðgerðir þar.
Ég get alltaf litið við og gefið góð ráð.

Re: Hvernig á maður að losa brotinn felgubolta?

Posted:
Fri 22. Oct 2010 18:21
by Axel Jóhann
Zed III wrote:Axel Jóhann wrote:Mæli með að þú farir í TB, Þeir elska svona viðgerðir þar.
Ég get alltaf litið við og gefið góð ráð.

Jújú, JOGA er felgubolta specialistinn.

Re: Hvernig á maður að losa brotinn felgubolta?

Posted:
Sat 23. Oct 2010 18:01
by Joibs
fart wrote:bora gat og setja öfugugga í, þá skrúfast þetta léttilega úr,
ætlaði akkurat að pósta þessu þegar ég sá spurninguna
og jamm mæli með því
en eru TB ekki rosalega dýrir... allavena er ég búinn að heira það

Re: Hvernig á maður að losa brotinn felgubolta?

Posted:
Sun 24. Oct 2010 14:07
by Lindemann
nei þeir eru ekki dýrir
en þetta fer eftir því hvort að brotið standi út úr eða ekki.
ef það stendur aðeins útúr, þá borgar sig bara að taka bremsudiskinn af og fara með visegrip á boltann, eða sjóða ró á hann.
Re: Hvernig á maður að losa brotinn felgubolta?

Posted:
Mon 01. Nov 2010 10:03
by Fatandre
Var að koma að utan þannig að bíllinn stóð bara inn í skúr. Hringdi í TB og þeir sögðu að þetta muni kosta svona 10.000. finnst það nú helvíti mikið.