Page 1 of 1

Vantar hjálp með 735.

PostPosted: Sun 17. Oct 2010 19:58
by kastro
Halló

Ég er með 87 árgerð af 735.
Hann festist oftast í 3. gír þegar ég kveiki á honum. Í mælaborðinu kemur upp "gettribeprogram" og E hverfur.
En stundum þegar ég kveiki á honum er allt í lagi en það er mjög sjaldan.

Hefur einhver hugmynd um hvað þetta getur verið. ??

Re: Vantar hjálp með 735.

PostPosted: Sun 17. Oct 2010 20:08
by saemi
Er þetta E23 eða E32?

Festist hann þegar þú færir skiptiarminn úr P í D?

Hvernig lýsir það sér. Kemur ljós á 3 eða finnur þú bara að bíllinn er í 3ja gír

Góðar útskýringar hjálpa alltaf.

Re: Vantar hjálp með 735.

PostPosted: Wed 20. Oct 2010 22:00
by kastro
saemi wrote:Er þetta E23 eða E32?

Festist hann þegar þú færir skiptiarminn úr P í D?

Hvernig lýsir það sér. Kemur ljós á 3 eða finnur þú bara að bíllinn er í 3ja gír

Góðar útskýringar hjálpa alltaf.


þettað er E 32

nei hann festist ekki hægt að fara i bakk og p og bara allt
en keirir bara í 3 þegar maður keirir áfram
sjálfskiptingin er nýlega uppgerð og var svona fyrir uppgerð

það kemur ekkert lós fyrir 3 eða annan eða neitt annað bara finn að hann keirir í 3

þau fáu skipti sem hann virkar sem skal þá koma ljósin með gírana

Re: Vantar hjálp með 735.

PostPosted: Wed 20. Oct 2010 23:37
by saemi
Þetta er einhver bilun í rafkerfinu varðandi skiptinguna, hún fer í neyðarprógram.

Best að leita á stöðum eins og spjallborðum sem sérhæfa sig í svona bílum. En sem dæmi þá getur þetta verið tölvuheilinn fyrir skiptinguna, sambandsleysi í tenglinum inn í skiptinguna, ventlaboddíið í skiptingunni, valtakkinn fyrir Economy/sport ofl.

Re: Vantar hjálp með 735.

PostPosted: Wed 20. Oct 2010 23:40
by Axel Jóhann
Ef að tölvan passar úr 750 þá á ég svona til.