Ástæður fyrir því að m50 reyki mikið?

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Ástæður fyrir því að m50 reyki mikið?

Postby Seli » Fri 15. Oct 2010 00:36

Sem sagt, ég er með e34 520ia með m50b20 sem reykir slatta við botngjöf og stundum í lausagangi og rólegri gjöf. Það er smá bensínlykt af reyknum, og ég efast um að þetta sé olíubruni þar sem reykurinn er grár og lyktar aðalega af bensíni.

Datt í hug að hann væri að rönna of ríkur án þess þó að vita það fyrir víst.

Einhverjar hugmyndir um hvað gæti verið málið og hvernig það væri leyst?
Land Rover 90, td300 og sjálfskipting
VW Jetta mk2 - Seldur
Suzuki Sidekick 35" - Seldur
E34 520ia - Seldur
E30 325i coupe - Seldur
Seli
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 323
Joined: Tue 12. May 2009 11:21

Re: Ástæður fyrir því að m50 reyki mikið?

Postby gulli » Fri 15. Oct 2010 09:24

Seli wrote:Sem sagt, ég er með e34 520ia með m50b20 sem reykir slatta við botngjöf og stundum í lausagangi og rólegri gjöf. Það er smá bensínlykt af reyknum, og ég efast um að þetta sé olíubruni þar sem reykurinn er grár og lyktar aðalega af bensíni.

Datt í hug að hann væri að rönna of ríkur án þess þó að vita það fyrir víst.

Einhverjar hugmyndir um hvað gæti verið málið og hvernig það væri leyst?


Er hann svona smá bláleytur ? kom hjá mér aðeins um daginn í einhverjar sek, þegar bíllinn var í lausagangi, þandi hann bara vel og þá hætti þetta :?
gulli
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2195
Joined: Fri 17. Sep 2004 02:24

Re: Ástæður fyrir því að m50 reyki mikið?

Postby Seli » Fri 15. Oct 2010 13:54

nei hef nú ekki tekið eftir einhverju bláu í honum, lúkkar bara eins og venjulegur pústreykur eins og þegar bíllinn er settur í gang, bara í mun meira magni.
Land Rover 90, td300 og sjálfskipting
VW Jetta mk2 - Seldur
Suzuki Sidekick 35" - Seldur
E34 520ia - Seldur
E30 325i coupe - Seldur
Seli
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 323
Joined: Tue 12. May 2009 11:21

Re: Ástæður fyrir því að m50 reyki mikið?

Postby Vlad » Fri 15. Oct 2010 15:48

Er í sama veseni og þú nema bara með m50b25

Hef ekki enn komið mér í það að mæla bensínþrýstingin... myndi giska á að eins og þú segir að hann sé of ríkur. Þó svo það væri best ef einhver gúrúinn gæti staðfest þetta.

Þrýstingurinn á að vera 3 bör (45psi)
Enginn bíll eins og er.
Vlad
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1318
Joined: Tue 22. Apr 2008 16:20
Location: Selfoss

Re: Ástæður fyrir því að m50 reyki mikið?

Postby Kwóti » Fri 15. Oct 2010 15:56

er hann ekki bara frá austur-evprópu?
VW Passat '07 2.0tdi
Kwóti
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 495
Joined: Sat 02. Dec 2006 18:16
Location: RVK

Re: Ástæður fyrir því að m50 reyki mikið?

Postby Seli » Fri 15. Oct 2010 17:18

Vlad wrote:Er í sama veseni og þú nema bara með m50b25

Hef ekki enn komið mér í það að mæla bensínþrýstingin... myndi giska á að eins og þú segir að hann sé of ríkur. Þó svo það væri best ef einhver gúrúinn gæti staðfest þetta.

Þrýstingurinn á að vera 3 bör (45psi)


renndi við í eðalbílum áðan, Bjarki sagði að þetta væri líklega bara vatn/gufa í pústinu og ekkert til að hafa áhyggjur af :thup:

Kwóti wrote:er hann ekki bara frá austur-evprópu?


classic :lol:
Land Rover 90, td300 og sjálfskipting
VW Jetta mk2 - Seldur
Suzuki Sidekick 35" - Seldur
E34 520ia - Seldur
E30 325i coupe - Seldur
Seli
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 323
Joined: Tue 12. May 2009 11:21


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 14 guests