Page 1 of 1

Henda inn innréttingu

PostPosted: Tue 12. Oct 2010 08:55
by Hreiðar
Sælir, ég er að fara að rífa út tausætin mín og hurðaspjöld og henda inn í bílinn leðursæti og hurðaspjöldin sem fylgja með þeim.
Ég var að heyra frá bróður mínum að það þyrfti að passa sig að hafa svissinn á vegna "airbags" þegar maður tengir þá við hurðaspjöldin og svona. Einhver sem kann á þetta og gæti gefið mér gott ráð?

kv, Hreiðar.

Re: Henda inn innréttingu

PostPosted: Tue 12. Oct 2010 09:31
by Axel Jóhann
Uuuuu, þú átt EKKI að hafa svissað á ef þú ert að fikta með air bag, þú átt að aftengja rafgeyminn svona 10-20 min áður en þú byrjar og hafa hann ÓTENGDANN Á MEÐAN.

Re: Henda inn innréttingu

PostPosted: Tue 12. Oct 2010 09:32
by Hreiðar
Axel Jóhann wrote:Uuuuu, þú átt EKKI að hafa svissað á ef þú ert að fikta með air bag, þú átt að aftengja rafgeyminn svona 10-20 min áður en þú byrjar og hafa hann ÓTENGDANN Á MEÐAN.


Ja ok, vinur bróður míns sem er bílakarl sagði þetta. Hann lenti í einhverju vegna þess að hann var ekki með svissinn á eða eitthvað svoleiðis, var bara með hann tengdann í rafmagn og þá fokkaðist allt upp.

Re: Henda inn innréttingu

PostPosted: Tue 12. Oct 2010 09:38
by Jón Ragnar
Aldrei hafa rafmagn á loftpúða þegar er átt við hann


hann virkar BARA með rafmagni og ef það fer þá er hann óvirkur :)

Re: Henda inn innréttingu

PostPosted: Tue 12. Oct 2010 09:44
by Hreiðar
John Rogers wrote:Aldrei hafa rafmagn á loftpúða þegar er átt við hann


hann virkar BARA með rafmagni og ef það fer þá er hann óvirkur :)


Ok, þegar allt er ótengt og enginn sviss á er engin hætta að loftpúðinn verður óvirkur eða eitthvað? Er bara nóg að hafa slökkt á bílnum og ekkert í gangi og skipta um þetta og tengja svo bara finito? :)

Re: Henda inn innréttingu

PostPosted: Tue 12. Oct 2010 09:45
by Jón Ragnar
Hann verður ekkert óvirkur :)

Re: Henda inn innréttingu

PostPosted: Tue 12. Oct 2010 09:51
by ///MR HUNG
Það eru engin tengi sem tengjast við hurðarspjöldin sem tengjast loftpúðum enn það eru sprengjuhleðslur í beltastrekkjurunum.
Taktu bara geyminn úr sambandi á meðan og þá ertu góður.

Re: Henda inn innréttingu

PostPosted: Tue 12. Oct 2010 09:51
by Hreiðar
Ok, þakka góð svör :thup: