Page 1 of 1

Að ná dempara úr E30 strötta

PostPosted: Sat 02. Oct 2010 19:12
by gunnar
Ég er að reyna að ná þessum blessaða ónýta KONI dempara úr ströttanum hjá mér.

Gengur ekkert sérstaklega vel þar sem þetta var tight fit ofan í..

Ég er búinn að setja rónna sem er á demparanum upp á og skífu og berja á þetta og hvað eina,

Málið er að ég vill ekki þjösnast mikið á rónni upp á að skemma hana þar sem þetta er spes ró fyrir coilover systemið, hún er mjórri en venjulegar rær.

Þannig mig vantar eiginlega 14 mm ró (ekki nema að það sé tommumál á Koni dempurum??)

Er einhver sem getur bjargað mér með svona ró í kvöld eða á morgun. Ég verð að ná demparanum úr sem fyrst.

Eru menn líka með góð ráð til að ná svona dempara úr?

Loka tilraun verður að komast í skrúfstykki, setja aðra ró á ásamt skinnu og reyna að hjakka þessu af.

Re: Að ná dempara úr E30 strötta

PostPosted: Sat 02. Oct 2010 19:19
by srr
Er demparinn fastur ofan í struttanum eftir að allt annað er losað af?
En að hafa demparann alveg úti, setja rónna í skrúfstykki (með rónna fyrir ofan stykkið sjálft) og lemja á struttann að neðan?
En ég á nokkra drasldempara úti í skúr (úr E28) með róm á sem þú mátt hirða rónna ef þú getur notað þær, Sachs & Monroe aðallega.

Re: Að ná dempara úr E30 strötta

PostPosted: Sat 02. Oct 2010 20:13
by gunnar
Já þetta er bara ströttinn sem er fastur. Búinn að losa allt og gera og græja.

En já planið er að setja þetta í skrúfstykki og hamast aðeins betur á þessu.

Vantar ró í það.

Er enginn sem á ró sem er ekki staddur í Reykjanesbæ? ;)

Re: Að ná dempara úr E30 strötta

PostPosted: Sat 02. Oct 2010 20:14
by Einarsss
Ertu að tala um róina sem skrúfast í ofaní ströttann sjálfan og heldur demparanum þar ofan í eða ertu að tala um þá sem er efst á demparastönginni?

Færðu ekki annars nýja svona ró þegar þú kaupir nýjan dempara?( þeas ef þetta er seinni kosturinn)

Ef þetta er fyrra dæmið þá er málið að nota stóra röratöng og lemja á hana með sleggju

Re: Að ná dempara úr E30 strötta

PostPosted: Sat 02. Oct 2010 20:15
by gunnar
Einarsss wrote:Ertu að tala um róina sem skrúfast í ofaní ströttann sjálfan og heldur demparanum þar ofan í eða ertu að tala um þá sem er efst á demparastönginni?

Færðu ekki annars nýja svona ró þegar þú kaupir nýjan dempara?( þeas ef þetta er seinni kosturinn)

Ef þetta er fyrra dæmið þá er málið að nota stóra röratöng og lemja á hana með sleggju


Nei ég er ekki að tala um rónna sem skrúfast í ströttann, búinn að losa það.

Er að tala um litlu rónna sem festist á demparann.

Málið er að ég fæ alveg nýja ró með demparanum, EN, venjulegar rær passa ekki með coilover dótinu, þannig með coilover dótinu fylgdu extra grannar rær sem passa og ég tými ekki að skemma hana.

Re: Að ná dempara úr E30 strötta

PostPosted: Sat 02. Oct 2010 20:57
by gstuning
Gætir notað loftlykill með sterku höggi

annars þegar svona hefur komið uppá hjá mér þá hef ég notað röratöng á dempara stöngina sjálfa.

Ef þú setur nóg af pappír eða álíka þá býrðu ekki til för í stöngina sem getur leitt til leka.

Re: Að ná dempara úr E30 strötta

PostPosted: Sun 03. Oct 2010 01:15
by srr
Tókst þetta Gunnar?

Re: Að ná dempara úr E30 strötta

PostPosted: Sun 03. Oct 2010 01:19
by gunnar
srr wrote:Tókst þetta Gunnar?


Náði ekki að græja mér ró, ætla að reyna að tækla þetta á morgun :?

Re: Að ná dempara úr E30 strötta

PostPosted: Sun 03. Oct 2010 01:22
by srr
gunnar wrote:
srr wrote:Tókst þetta Gunnar?


Náði ekki að græja mér ró, ætla að reyna að tækla þetta á morgun :?

En róaðistu samt ekki niður þótt þú hafir ekki fundið ró? :lol:

Re: Að ná dempara úr E30 strötta

PostPosted: Sun 03. Oct 2010 01:26
by gunnar
Jú ég er alveg hrikalega rólegur :lol:

Re: Að ná dempara úr E30 strötta

PostPosted: Sun 03. Oct 2010 19:35
by Axel Jóhann
thetta lukkadist med hàthrôadri adferd!

Re: Að ná dempara úr E30 strötta

PostPosted: Sun 03. Oct 2010 20:16
by gunnar
Axel Jóhann wrote:thetta lukkadist med hàthrôadri adferd!


Strappar og skrúfstykki eru alveg að gera sig :lol: