ég er semsagt að skipta um gorma hjá mér að aftan og annað hvort er ég með óheppilegar gormapressur eða þá að ég er að rasshausa mig í gegnum þetta. Ég næ ekki að setja hina gormana í ef að pressurnar eru beint á móti hver annari og þetta virkar heldur þröngt allt saman.
Eruði ekki með einhver trick við þetta annað en að tjakka bílinn upp og ráðast í þetta?
Á ég kannski að losa demparann eitthvað eða fikta eitthvað í spyrnu festingunum, eða eitthvað slíkt?
Eins einfalt og þetta er þá finnst mér ég vera að gera þetta eitthvað vitlaust


