Page 1 of 2
frostlög á m50

Posted:
Sun 12. Sep 2010 15:24
by gunnar695
hvaða frostlög eru menn að nota á m50 ??
þetta er notla stál blokk en ál hedd .
Re: frostlög á m50

Posted:
Sun 12. Sep 2010 15:28
by Axel Jóhann
Bláann
Re: frostlög á m50

Posted:
Sun 12. Sep 2010 19:07
by Jón Ragnar
Er það svakaslæmt að nota rauðann?

Re: frostlög á m50

Posted:
Sun 12. Sep 2010 19:17
by Einarsss
Veit ekki hver munurinn er á bláum vs rauðum .. en það má alls ekki mixa þeim saman, kekist og tilheyrandi skemmtun sem fylgir því
Re: frostlög á m50

Posted:
Sun 12. Sep 2010 19:18
by SævarSig
Einarsss wrote:Veit ekki hver munurinn er á bláum vs rauðum .. en það má alls ekki mixa þeim saman, kekist og tilheyrandi skemmtun sem fylgir því
Rauður á að vera "long life" En já það er rétt hjá þér þeir mega alls ekki fara saman, getur stíflað vatnslás og þessháttar.
Re: frostlög á m50

Posted:
Sun 12. Sep 2010 19:32
by Axel Jóhann
Blár frostlögur fer á bmw útaf því að pakkningar eru hannaðar til að þola þennan bláa, það eru mismunandi efni í rauðum grænum og bláum.
Re: frostlög á m50

Posted:
Sun 12. Sep 2010 20:01
by Mazi!
Bláann
Re: frostlög á m50

Posted:
Sun 12. Sep 2010 20:55
by gunnar695
oki takk fyrir svörin . kaupi bláan á morg
Re: frostlög á m50

Posted:
Sun 12. Sep 2010 21:12
by lacoste
gunnar695 wrote:oki takk fyrir svörin . kaupi bláan á morg
Var verið að skipta um heddpakkningu?
Re: frostlög á m50

Posted:
Sun 12. Sep 2010 23:32
by Vlad
Það er grænn á mínum... og hefur verið síðan var skipt um vatnskassa í fyrra... er það eitthvað verri en blár t.d?
Re: frostlög á m50

Posted:
Sun 12. Sep 2010 23:47
by gunnar695
lacoste wrote:gunnar695 wrote:oki takk fyrir svörin . kaupi bláan á morg
Var verið að skipta um heddpakkningu?
nei mín er ekki farin eg var bara með einhverja drasll oliu er buinn að vera að fylgjast með þessu nuna heil leingi og það er ekkert vatn i oliuni .
eg las lika einhverstaðar að það kemur stundum raki i oliu á bílum sem eru keirðir stutt þannig að motorinn hitnar ekki no og þá mindast raki sem nær ekki að fara . eða einhvað í þá áttina .
en vatnskassinn fór hjá mer einn stúturinn sem vatns slanga festist á molnaði bara af frekar spes en er kominn með annan og allt komið saman á bara eftir að sitja meiri frostlög líka fínt að hafa þetta i góðu fyrir veturinn.
Re: frostlög á m50

Posted:
Mon 13. Sep 2010 00:48
by Axel Jóhann
Vlad wrote:Það er grænn á mínum... og hefur verið síðan var skipt um vatnskassa í fyrra... er það eitthvað verri en blár t.d?
Að vera ekki með réttan frostlog getur örsakað það að pakkningar fara leka vegna þess að þær þola ekki efnin sem eru í öðrum en bláum frostlegi.
Re: frostlög á m50

Posted:
Mon 13. Sep 2010 09:18
by gardara
John Rogers wrote:Er það svakaslæmt að nota rauðann?

Rauður er langsvalastur

Re: frostlög á m50

Posted:
Mon 13. Sep 2010 09:35
by JOGA
Á öllum spjallborðum úti er oftast talað um að maður eigi að nota OEM kælivökva.
Er eitthvað vit í þessu?
Er einhver munur á bláum kælivökva úr N1 eða álíka og OEM BMW vökva?
Re: frostlög á m50

Posted:
Mon 13. Sep 2010 09:50
by Einarsss
hef notað bláa frá N1 með fínum árangri, stendur utan á honum að hann sé bmw vottaður minnir mig.