Page 1 of 1

Titringur í stýri þegar það er bremsað (e46)

PostPosted: Wed 08. Sep 2010 22:35
by Elnino
Hvað getur valdið titringi í stýri?

Hann er ekki mjög mikill en þetta er svo fjandi leiðnilegt.

Það eru nýlegar spyrnufóðringar undir bílnum + ný spyrna og fóðringar hægra megin að framan

Hvað kemur til greina?

skakkir bremsutdiskar? eða er nóg kannski að vera með slitin/léleg dekk undir bílnum til að framkalla svona titring?

Geta einhverjar fleiri fóðringar valdið þessu?

Væri fínt ef þið gætuð komið með hugmyndir svo eg gæti farið og tékkað á þessu :)

Re: Titringur í stýri þegar það er bremsað (e46)

PostPosted: Wed 08. Sep 2010 23:25
by kalli*
Bremsudiskarnir gætu verið búnir bara líka, þeir valda þessu stundum ef mér skjáltast ekki ?

Re: Titringur í stýri þegar það er bremsað (e46)

PostPosted: Wed 08. Sep 2010 23:31
by -Hjalti-
undnir og eða skakkir bremsudiskar

Re: Titringur í stýri þegar það er bremsað (e46)

PostPosted: Wed 08. Sep 2010 23:34
by Rafnars
Getur líka verið stirðleiki í bremsudælu (sleðum)

Re: Titringur í stýri þegar það er bremsað (e46)

PostPosted: Wed 08. Sep 2010 23:35
by Axel Jóhann
Þetta er alveg örugglega bremsurnar fyrst að fóðringarnar eru nýjar.

Re: Titringur í stýri þegar það er bremsað (e46)

PostPosted: Wed 08. Sep 2010 23:53
by Elnino
Ætli ég kaupi þá ekki bara nýja diska og klossa. Hlýtur að vera kominn tími á það, bíllinn er ekinn 120þús.

Re: Titringur í stýri þegar það er bremsað (e46)

PostPosted: Thu 09. Sep 2010 18:02
by JonHrafn
Að öllum líkindum dugir að renna diskana.

Re: Titringur í stýri þegar það er bremsað (e46)

PostPosted: Thu 09. Sep 2010 18:06
by Axel Jóhann
JonHrafn wrote:Að öllum líkindum dugir að renna diskana.



Hvað er svoleiðis að kosta hérna í bænum? Nýjir diskar frá AB-varahlutum eru virkilega billegir í flestöllum tilfellum. 8)

Re: Titringur í stýri þegar það er bremsað (e46)

PostPosted: Thu 09. Sep 2010 19:39
by kalli*
Talaði nú einu sinni við þá í TB og þeir sögðu að það er eiginlega jafn dýrt að kaupa nýja og að láta renna þá. (í e36 allavega)

Re: Titringur í stýri þegar það er bremsað (e46)

PostPosted: Thu 09. Sep 2010 19:54
by crashed
kanski ekki jafn dýrt en ég borgaði 2 þúsund krónum meira fyrir nýja í tb með krafts afslætinum :thup:

Re: Titringur í stýri þegar það er bremsað (e46)

PostPosted: Thu 09. Sep 2010 20:26
by kalli*
crashed wrote:kanski ekki jafn dýrt en ég borgaði 2 þúsund krónum meira fyrir nýja í tb með krafts afslætinum :thup:


Sagði nú ekki að þetta væri nákvæmlega jafn dýrt, en 2000 króna mismunur er alls ekki mikið miðað við það að þú færð glænýja bremsudiska.

Re: Titringur í stýri þegar það er bremsað (e46)

PostPosted: Thu 09. Sep 2010 23:07
by JonHrafn
Tja.. það kostaði mig síðast 2000kr að láta renna framdisk .. keypti síðan nýja afturdiska fyrir 10þús stykkið í tb.

Re: Titringur í stýri þegar það er bremsað (e46)

PostPosted: Sat 11. Sep 2010 03:06
by Bandit79
Getur líka verið skökk felga ?

Re: Titringur í stýri þegar það er bremsað (e46)

PostPosted: Mon 13. Sep 2010 13:09
by jonthor
Miðað við mína reynslu í þessu þá myndi ég kaupa nýja diska og borða.

Athugaðu samt að það er möguleiki að titringurinn sé að koma frá afturdekkjunum. Láttu skoða diskana.

Hjá mér var ég búinn að skipta um bókstaflega allt til að losna við titring og komst að lokum að því að afturdiskarnir voru að valda þessu.