Re: ABS ljósið logar!

Posted:
Thu 02. Sep 2010 11:05
by JOGA
Þú hefur líklega eitthvað rekið þig í ABS skynjarann sem er þarna á sömu slóðum. Getur prófað að rífa dekkið af og kanna það hvort hann sé ekki vel í. Getur líka prófað að taka hann úr og hreinsa hann. Passaðu þig bara á því að þeir eru gjarnir á að brotna þegar þeir eru teknir úr eftir mikla notkun. Verður hálf fastur í.
Handbremsan sem slík hefur ekki áhrif á ABS.
Það er ekki nóg að taka rafmagn af bílhum.
Ef þú lagar það sem er að þá fer ljósið. Tölvan endurstillir sig sjálf.
Hún hreinsar sig svo út eftir að mig minnir 40 eða 60 stört.
(Miðast við E36)
Re: ABS ljósið logar!

Posted:
Thu 02. Sep 2010 11:24
by Jón Ragnar
abs ljósið logar hjá mér
og abs virkar ekki heldur, abs kubburinn er víst ónýtur