Page 1 of 2

Spurning varðandi handbremsu í E36

PostPosted: Sun 29. Aug 2010 22:47
by JOGA
Sælir,

Er að laga hjá mér handbremsuna að aftan í 318is.
Stillingin á þeim var út á túni. Slit virðist vera lítið og barkar í lagi.

Búinn að stilla farþegamegin. Þar var það ekkert mál.
Vinstra megin þurfti ég að taka diskinn af til að liðka stilliskrúfuna. Hún var pikk föst.

Ég sé núna að það vantar bolta/gorminn sem er nr. 10 og 11 á myndinni hérna að neðan.
Borðinn er svolítið gjarn á að velta aðeins til þegar stilliskrúfan er í.

Er í lagi að setja þetta saman án þessarar skrúfu? Er þetta alltaf þarna í þessum bílum?

Image

Re: Spurning varðandi handbremsu í E36

PostPosted: Sun 29. Aug 2010 22:52
by GunniT
Þetta verður að vera til staðar

Re: Spurning varðandi handbremsu í E36

PostPosted: Sun 29. Aug 2010 23:00
by JOGA
GunniT wrote:Þetta verður að vera til staðar


Helvíti. Einhver sem á þetta hérna?

Ætli maður verði ekki að hringja í IH á morgunn og sjékka hvort þetta sé til...

Re: Spurning varðandi handbremsu í E36

PostPosted: Mon 30. Aug 2010 01:03
by Axel Jóhann
Er til á öllum bílaverkstæðum, getur örugglega fengið að gramsa í notuðu dóti eða farið í n1 og keypt svona nýtt gormasett, þetta fylgir með því :) Þetta þarf ekkert endilega að vera úr BMW

Re: Spurning varðandi handbremsu í E36

PostPosted: Mon 30. Aug 2010 09:20
by JOGA
Axel Jóhann wrote:Er til á öllum bílaverkstæðum, getur örugglega fengið að gramsa í notuðu dóti eða farið í n1 og keypt svona nýtt gormasett, þetta fylgir með því :) Þetta þarf ekkert endilega að vera úr BMW


Ok, gott að vita. Vissi það ekki.

Re: Spurning varðandi handbremsu í E36

PostPosted: Mon 30. Aug 2010 22:05
by JOGA
Náði að redda þessu með gormasetti úr Fiat Tipo '88 sem ég fékk gefins :mrgreen:

AB Varahlutir :thup:

Re: Spurning varðandi handbremsu í E36

PostPosted: Mon 30. Aug 2010 23:56
by JOGA
JOGA wrote:Náði að redda þessu með gormasetti úr Fiat Tipo '88 sem ég fékk gefins :mrgreen:

AB Varahlutir :thup:


Daim. Nú þegar ég ætla að setja diskinn aftur á þá dettur gormurinn bara úr.
Rykhlífin orðin svo ryðguð að þetta heldur ekki.

Einhver ráð? Eina leiðin kannski að skipta um hlíf?

Re: Spurning varðandi handbremsu í E36

PostPosted: Tue 31. Aug 2010 00:11
by Axel Jóhann
Getur líka notað bara 6mm, langann bolta og lásró og 2 skinnur það gerir sama gagn.

Re: Spurning varðandi handbremsu í E36

PostPosted: Tue 31. Aug 2010 00:12
by gardara
Að púsla þessu gormadrasli saman er alveg eitt það leiðinlegasta sem ég hef gert

Re: Spurning varðandi handbremsu í E36

PostPosted: Tue 31. Aug 2010 00:24
by JOGA
Axel Jóhann wrote:Getur líka notað bara 6mm, langann bolta og lásró og 2 skinnur það gerir sama gagn.


Datt þetta í hug áðan. Það er bara svo lítið pláss fyrir aftan hlífina. Varla að maður komi skinnu þarna á milli.

Djöfull er þetta leiðinlegt :argh:

Re: Spurning varðandi handbremsu í E36

PostPosted: Tue 31. Aug 2010 01:02
by JOGA
Þarf ég að taka hubinn og leguna og allt úr til að skipta um þessa %/&$(&$# hlíf?
Ótrúlega heimskulega hannað drasl. Afhverju ekki að láta þetta boltast í arminn í staðinn fyrir að hanga í þessari hlíf :evil:

Orðinn ekkert smá pirraður á þessu.

Er annars til einhver svona þunn plata með skrúfgangi í sem ég gæti reynt að setja fyrir aftan og bolta svo í með gorminn á milli?

Re: Spurning varðandi handbremsu í E36

PostPosted: Tue 31. Aug 2010 01:38
by crashed
3 aðferðir við þetta

1. rífa leguna og allt af og skyfta um þetta, virkilegt vesen
2. nota langa 6 mm bolta skinur og rær,
3, eins og ég gerði ég skar plötuna í 2 og þá kemst hún á ekkert vesen og klikaði aldrei hjá mér

Re: Spurning varðandi handbremsu í E36

PostPosted: Tue 31. Aug 2010 01:45
by ///MR HUNG
Það á að rífa svona gamla bíla :wink:

Re: Spurning varðandi handbremsu í E36

PostPosted: Tue 31. Aug 2010 11:46
by gulli
///MR HUNG wrote:Það á að rífa svona gamla bíla :wink:


Neinei,, þetta er bara gaman :lol:

Re: Spurning varðandi handbremsu í E36

PostPosted: Tue 31. Aug 2010 13:21
by JOGA
gulli wrote:
///MR HUNG wrote:Það á að rífa svona gamla bíla :wink:


Neinei,, þetta er bara gaman :lol:


Segi að þetta sé gaman en það var það þar til þetta fór að bögga mig.
Engin ástæða til að rífa þetta, þetta er nánast nýtt :angel: