Er að laga hjá mér handbremsuna að aftan í 318is.
Stillingin á þeim var út á túni. Slit virðist vera lítið og barkar í lagi.
Búinn að stilla farþegamegin. Þar var það ekkert mál.
Vinstra megin þurfti ég að taka diskinn af til að liðka stilliskrúfuna. Hún var pikk föst.
Ég sé núna að það vantar bolta/gorminn sem er nr. 10 og 11 á myndinni hérna að neðan.
Borðinn er svolítið gjarn á að velta aðeins til þegar stilliskrúfan er í.
Er í lagi að setja þetta saman án þessarar skrúfu? Er þetta alltaf þarna í þessum bílum?







