Page 1 of 1
E36 airbag ljós

Posted:
Sun 29. Aug 2010 13:02
by HjorturG
Jæja, núna þyrfti ég að koma bílnum í skoðun en því miður þá logar airbag ljósið útaf einhverjum skrínilegum ástæðum. Er víst mjög algengt vandamál í þessum bílum. Hvað get ég gert til þess að gera hann skoðunarhæfan? Soldið vesen að laga þetta, þarf að lesa af honum og svona en þegar ég fór með bílinn í ástandsskoðun þá spjallaði ég við skoðunarkallinn um þetta og hann sagði mér bara að taka peruna úr, líma yfir SRS Airbag merkin á stýrinu og dashboardinu og að þeir mættu ekki fjarlægja límmiða eða svona úr bílnum og hann mundi þá komast í gegnum skoðun.
Er eitthvað vit í því sem skoðunarmaðurinn sagði mér?
Re: E36 airbag ljós

Posted:
Sun 29. Aug 2010 13:06
by gulli
Afhverju að líma yfir SRS Airbag merkin á stýrinu og dashboardinu ???? Ef þú tekur peruna úr mælaborðinu þá er þetta ljós ekki til staðar og þeir þá taka ekki eftir þessu í skoðuninni.
Re: E36 airbag ljós

Posted:
Sun 29. Aug 2010 13:09
by HjorturG
Því að þegar þú svissar á þá lýsa öll ljósin í mælaborðinu.. ef það eru SRS Airbag merki þá er airbag í bílnum og airbagljósið verður því að lýsa þegar maður svissar á.
Re: E36 airbag ljós

Posted:
Sun 29. Aug 2010 13:14
by gulli
Ég myndi bara taka perunna úr og láta vaða

Held að þeir séu ekkert að spá eitthvað í þessu

Re: E36 airbag ljós

Posted:
Sun 29. Aug 2010 14:22
by JOGA
gulli wrote:Ég myndi bara taka perunna úr og láta vaða

Held að þeir séu ekkert að spá eitthvað í þessu

Held að það myndi alveg virka. Í bretlandi eru þeir frekar stífir á þessu.
En ég prófaði að taka bara ljósið úr því mig vantaði nauðsynlega að fá skoðun og ég var búinn að prófa að skipta um skynjara. (reyndist vera ónýtt naf/tannhjólahringur).
Það virkaði alveg. Þeir eru ekkert að taka eftir því að ABS ljósið komi ekki og fari nema þeir séu mjög vel vakandi.
Re: E36 airbag ljós

Posted:
Sun 29. Aug 2010 15:24
by rockstone
eða bara setja smá tape yfir ljósið
Re: E36 airbag ljós

Posted:
Sun 29. Aug 2010 17:17
by HjorturG
Jæja fór og tók peruna úr, en þá var eitthvað annað ljós þarna sem lýsti þ.a. airbag merkið var svona hálfupplýst einhvernvegin.. Hélt nú að þetta ætti ekki að vera svona þ.a. fann lítinn svartan taubút og tróð í gatið eftir peruna, núna er merkið alveg horfið.. vonum bara að skoðunarmaðurinn taki ekki eftir þessu

Re: E36 airbag ljós

Posted:
Mon 30. Aug 2010 16:49
by HjorturG
Jæja bíllinn flaug gegnum skoðun og er kominn með fínan bláan miða

Re: E36 airbag ljós

Posted:
Thu 09. Sep 2010 23:58
by einarbjor
ef þú vilt laga þetta eru stærstar líkur að þetta sé hjól bakvið loft púðan í stírinu
rúlla með airbag straumnum
sem þirfti að skipta um
Re: E36 airbag ljós

Posted:
Fri 10. Sep 2010 01:24
by Axel Jóhann
Kallast clock spring
Re: E36 airbag ljós

Posted:
Fri 10. Sep 2010 20:45
by sosupabbi
þarf ekki endilega að vera, ég skipti um clockspring hjá mér en airbag ljósið lagaðist ekki, setti bara límband yfir þegar ég fór í endurskoðun og fékk athugarsemdarlausa skoðun.