Page 1 of 1

Demparafóðring - 14mm gat í 12 mm

PostPosted: Tue 24. Aug 2010 18:12
by gunnar
Ég er í smá dilemmu.

Er með dempara, að vísu ekki undir BMW en here goes:

Gúmmífóðringing á demparanum er með gat fyrir 14MM bolta. Það eru einungis 12MM boltar í bílnum orginal og götin á hásingu (ekki snittað) eru fyrir 12 MM.

Það sem mig datt í hug er hvort það séu til insert, fóðring í fóðringu þar sem utari veggurinn er 14mm en innri 12mm. Að vísu ekki nema 1MM sitthvoru megin en þetta gæti samt verið til.

Hafa menn einhverja vitneskju um þetta?

Re: Demparafóðring - 14mm gat í 12 mm

PostPosted: Tue 24. Aug 2010 18:32
by T-bone
Það er náttúrulega hægt að smíða nánast hvað sem er. Og ef að menn treysta sér ekki til að smíða þetta með 1 mm í veggþykkt þá er yfirleitt hægt að bora fóðringuna á demparanum út til að fá meiri veggþykkt.

Re: Demparafóðring - 14mm gat í 12 mm

PostPosted: Tue 24. Aug 2010 18:35
by srr
Það hlýtur að vera hægt að fá svona "slíf" í Byko/Húsasmiðjunni/Landvélum etc...

Re: Demparafóðring - 14mm gat í 12 mm

PostPosted: Tue 24. Aug 2010 18:39
by gstuning
Hendir utan á þetta 1mm sleeve.

gætir eins keypt rör sem er 1mm vegg þykkt, er með 12mm innra mál og 14mm ytra mál.
Ef það er til þá.

Ekkert að því að hafa þetta 1mm þykkt því það er stuðningur báðu meginn, þannig að þetta gerir ekkert nema að þykkja boltann.

Re: Demparafóðring - 14mm gat í 12 mm

PostPosted: Tue 24. Aug 2010 18:47
by gunnar
gstuning wrote:Hendir utan á þetta 1mm sleeve.

gætir eins keypt rör sem er 1mm vegg þykkt, er með 12mm innra mál og 14mm ytra mál.
Ef það er til þá.

Ekkert að því að hafa þetta 1mm þykkt því það er stuðningur báðu meginn, þannig að þetta gerir ekkert nema að þykkja boltann.


Það er það sem ég er að leitast eftir. Ætla að hringja í BYKO og Co á morgun og athuga málið.

Ég hugsaði þetta einmitt þannig, að ég er bara að þykkja boltann. Vildi fara þessa leið áður en ég fer að bolta festinguna í hásingunni og þar með get ég bara notað 14mm bolta ef ég fæ mér aðra dempara.

Re: Demparafóðring - 14mm gat í 12 mm

PostPosted: Wed 25. Aug 2010 13:20
by gunnar
Sýnist þetta ekki vera til í fljótu bragði,

Búinn að hringja í N1, Landvélar, Fálkann. Þeir segja þetta ekki til að minnsta kosti.

Ætla að renna í N1 á morgun með demparann og sjá hvort ég fái ekki bara nýja fóðringu með 12MM gati. Alveg þess virði að skipta þá bara um þetta ef þetta er líka orðið eitthvað slitið.

Re: Demparafóðring - 14mm gat í 12 mm

PostPosted: Wed 25. Aug 2010 13:27
by T-bone
gunnar wrote:Sýnist þetta ekki vera til í fljótu bragði,

Búinn að hringja í N1, Landvélar, Fálkann. Þeir segja þetta ekki til að minnsta kosti.

Ætla að renna í N1 á morgun með demparann og sjá hvort ég fái ekki bara nýja fóðringu með 12MM gati. Alveg þess virði að skipta þá bara um þetta ef þetta er líka orðið eitthvað slitið.



Eini sénsinn á að fá 1mm slíf er líklega að láta smíða hana. Taka annaðhvort rör sem er 14 að utanmáli og bora það út í 12, eða taka rör sem er 12 að innanmálai og renna það niður í 14...

Re: Demparafóðring - 14mm gat í 12 mm

PostPosted: Sat 28. Aug 2010 12:55
by gunnar
Ég fékk ný insert í fóðringarnar hjá N1 sem pössuðu.

Fann hvergi svona slíf sem var til á lager neins staðar.

Þannig málinu er reddað :thup: