Page 1 of 2

Smá vandamál með m50 í e36

PostPosted: Mon 23. Aug 2010 18:02
by ingo_GT
Jæja setti m50 ofan í e36 minn í gær 96 árgerð og málið er að þegar ég reynti að starta gerðist ekkert þá það er allt rétt tengt hjá mér.

En síðan þegar ég ýtti bílnum útt og læsi þá fer þjófavörnin í gáng á fullu.

Þessi mótor kom úr öðrum e36 og það er e34 rafkerfi á mótornum.

Re: Smá vandamál með m50 í e36

PostPosted: Mon 23. Aug 2010 18:03
by gulli
obd II kjaftæðið ????

Re: Smá vandamál með m50 í e36

PostPosted: Mon 23. Aug 2010 18:54
by Jón Ragnar
Ekki bara EWS?


have fun :lol:

Re: Smá vandamál með m50 í e36

PostPosted: Mon 23. Aug 2010 20:02
by ingo_GT
John Rogers wrote:Ekki bara EWS?


have fun :lol:


Hverni náði þú að redda þessu hjá þér ?

Var ekki svona í þínum ? :)

Re: Smá vandamál með m50 í e36

PostPosted: Mon 23. Aug 2010 21:07
by Jón Ragnar
Mótorinn var ekkert með svona óþarfa :)

Re: Smá vandamál með m50 í e36

PostPosted: Tue 24. Aug 2010 03:26
by T-bone
John Rogers wrote:Mótorinn var ekkert með svona óþarfa :)


flottur. Sömu þægindi hjá mér.

Hvaða model er annars bíllinn sem mótorinn kom úr ingó?

Re: Smá vandamál með m50 í e36

PostPosted: Tue 24. Aug 2010 08:17
by Aron Fridrik
m50 er pre ews og hann er obd I ekki obd II

ertu búinn að athuga neista og og hvort hann fái bensín ?

Re: Smá vandamál með m50 í e36

PostPosted: Tue 24. Aug 2010 10:42
by T-bone
Aron Fridrik wrote:m50 er pre ews og hann er obd I ekki obd II

ertu búinn að athuga neista og og hvort hann fái bensín ?



M50 eru ekki allir pre-EWS. Í nóvember eða desember '94 fóru M50 mótorar að koma með EWS :wink:

Re: Smá vandamál með m50 í e36

PostPosted: Tue 24. Aug 2010 18:58
by ingo_GT
T-bone wrote:
John Rogers wrote:Mótorinn var ekkert með svona óþarfa :)


flottur. Sömu þægindi hjá mér.

Hvaða model er annars bíllinn sem mótorinn kom úr ingó?


kom úr 93-94 árgerð af e36.

Þetta er meira helvítis vesinn :lol:

Re: Smá vandamál með m50 í e36

PostPosted: Tue 24. Aug 2010 19:22
by ingo_GT
Er samt með einaspurningu Ætti bílinn ekki að starta fyrri þessu rugli en ekki fara í gáng ?

Hann startar nefnilega ekki hjá mér ?
Spá hvort þessi startir sem ég setti í hann sje dauður eða ekki :)

Re: Smá vandamál með m50 í e36

PostPosted: Tue 24. Aug 2010 19:32
by gstuning
Svaraðu emailum :lol:


Ef þú tengir svartur/gulur beint í 12v þá veistu hvort startarinn sé dauður eða ekki.

Athuga jarðtengingar og 12v tengingar, því það var vandamálið hjá Jóni :oops:

Re: Smá vandamál með m50 í e36

PostPosted: Wed 25. Aug 2010 01:49
by Danni
Ef þetta er EWS vandamál snýr startarinn en tölvan gefur aldrei neista, þannig það ætti nú eitthvað að gerast.

Þegar ég swappaði M50B25 í PO-700, sem var E36 320 orginal með M52B20 þá kom einmitt EWS vandamál upp en bíllinn var með EWS (95 árgerð).

Fyrst að þetta er 96 bíll sem þú varst að swappa í þá er EWS til staðar í honum og fyrst að tölvan sem þú ert núna með í bílnum stemmir ekki við EWS tölvuna þá á þetta eftir að vera mikið puð að koma þessu í gang.

Ég veit ekki hvernig á að leysa þetta en eftir að ég seldi Viktori bílinn þó fór hann með hann til Skúra Bjarka og mér skilst að hann hafi skipt um rafkerfið að innan líka.

Þannig þú gætir þurft að spaða báða bílana þína að innan og nota rafkerfið úr OEM 325-inum.

En annars, hvers vegna er E34 rafkerfi á mótornum fyrst að dónor bíllinn var 325 E36 væntanlega með rafkerfi í lagi??

Re: Smá vandamál með m50 í e36

PostPosted: Wed 25. Aug 2010 08:06
by Zed III
Danni wrote:Þannig þú gætir þurft að spaða báða bílana þína að innan og nota rafkerfið úr OEM 325-inum.



Þarft í mesta lagi hringin utanum svissin og ews boxið úr donorinum.

Re: Smá vandamál með m50 í e36

PostPosted: Wed 25. Aug 2010 08:58
by Jón Ragnar
gstuning wrote:Svaraðu emailum :lol:


Ef þú tengir svartur/gulur beint í 12v þá veistu hvort startarinn sé dauður eða ekki.

Athuga jarðtengingar og 12v tengingar, því það var vandamálið hjá Jóni :oops:



það var aðalega bensínið hjá mér.

Var vitlaust tengt það :wink:

Re: Smá vandamál með m50 í e36

PostPosted: Wed 25. Aug 2010 16:52
by Danni
Zed III wrote:
Danni wrote:Þannig þú gætir þurft að spaða báða bílana þína að innan og nota rafkerfið úr OEM 325-inum.



Þarft í mesta lagi hringin utanum svissin og ews boxið úr donorinum.


Það er nefnilega sama vandamál og ég lenti í, það var ekki EWS í donor bílnum og þar af leiðandi ekkert EWS box og þess vegna þurfti rafkerfi í bílinn sem gerði ekki ráð fyrir EWS.

Þar sem að vélin kemur úr 93-94 325 þá er held ég alveg örugglega ekki EWS, þar sem mig minnir að EWS kom fyrst í E36 árið 95.