Kaup á dekkjum á Íslandi, standardinn lágur.
Þetta er í raun bara skandall.
Til að byrja með vil ég auðvitað segja að við á íslandi þurfum kannski ekki alveg að vera eins ströng á því hvort dekkin sem við erum með undir bílnum séu með hraðatakmörkun, speed rating t.d. H (210 km hraði) eða t.d. W (270 km hraði) eða þaðan af hærra þar sem yfirleitt er ekki ekið á mikið meira en 100 km hraða. Og veðurfar er líka yfirleitt frekar kalt svo það að pæla í speed rating og öllu því er kannski ekkert svo rosalega mikilvægt.
Og mikið um það hér heima að menn séu að kaupa notuð dekk t.d. hjá Vöku og fl. stöðum og yfirleitt er svosem ekkert að því.
En málið er svoleiðis að brósi og ég erum að fara til meginlandins, Þýskalands, á bílnum hanns (540iA ´96) og afturdekkin eru orðin slöpp og hann vildi helst að búið yrði að kaupa dekkin áður en langt væri af stað héðan.
Þannig ég fór að leita að dekkjum, með nokkrum smá kröfum.
*Að það sé að minnsta kosti Z (yfir 240 km hraði) speed rating, þar sem ég reikna fastlega með að það verði ekið á 200 km hraða þar sem það má og bíllinn er limiteraður á 250.
*Að dekkin séu tilturlega nýleg. Nýlega eru menn farnir að tala um það hér heima að dekk eigi helst ekki að vera eldri en 6 ára.
*Fá upplýsingar um UTQG eða Uniform Tire Quality Grading (bandarískur staðall fyrir endingu og grip) eða sambærilegar upplýsingar ef dekkin koma annarsstaðar frá, eins og t.d. evrópu.
Í fyrsta lagi er ég að leita að 255/40-17 sem er bara normal stærð á 17 dekkjum aftaná BMW 5-línu, og ég myndi telja þetta vera nokkuð algenga stærð.
Allavega kom mér verulega á óvart hvað í raun fáir eiga þess stærð til.
Svo þegar maður fór að spyrja út í slit-rating á dekkjunum fór menn bara að klóra sér í hausnum og sumir sem vildi meina að það væri aldrei gefið upp.
Svo kom að því versta í rauninni, aldur dekkjanna. Menn sem hafa unnið árum saman, og sumir hverjir áratugum saman í dekkjabissnisnum hér heima höfðu bara aldrei pælt í því að hægt væri að sjá á dekkjunum hvenær þau væru framleidd.
Ég fékk að sjá dekkin á nokkrum stöðum og þau voru bara orðin ansi gömul sumsstaðar. Í versta tilfellinu var verið að reyna selja með hágæða dekk á fullu verði (60 þús fyrir stykkið) sem framleitt var árið 2000, og ég spurði manninn áður en hann náði í dekkið hvort þau væri nokkuð orðin gömul, eitthvað sem væri búið að sita lengi inni á lager, og hann sagði að þau væri ný.
Á öðrum stað voru þau orðin 9 ára gömul, 7 á einum og 6 á enn öðrum og svo fann ég ein sem mér leist ekkert allt of ílla á en þau voru samt sem áður 4 ára gömul.
Það eitt og sér er í raun alveg nógu slæmt að kaupa dekk, dýr dekk í þokkabót, ætla sér að kaupa þau sem ný dekk en þau eru samt orðin 4 ára gömul.
Jú, jú ég veit alveg að það varð bankahrun hérna í haustmánuðum 2008 og lítið af performance dekkjum sem hefur verið flutt inn síðan þá, en common, 10 ára gömul dekk.
Og hvað á maður svo eftir að keyra lengi á þeim dekkjum 2-3 ár kannski, hvað eru þau þá orðin gömul.
Mér finnst þetta í rauninni það svívirðilegt að ég er að spá í því að senda FÍB nokkrar línur.
Ég er í rauninni bara að skrifa þetta hérna núna aðeins til að blása út og til að vekja ykkur hina til smá umhugsunar næst þegar þið kaupið ykkur dekk.
Ekki treysta á það að gaurarnir á dekkjaverkstæðunum viti eitthvað um þetta eða vilji segja ykkur rétt til. Kynnið ykkur þetta sjálf hvernig merkingarnar eru og hvernig þær virka og fáið að sjá dekkin áður en þið kaupið þau.
En við hverju á maður annars að búast þegar stór hluti ökumanna veit ekki einu sinni að það á að vera ákveðin loftpressa í dekkjunum undir bílnum hjá sér.