Page 1 of 1

Vantar mann til að skipta um olíup.pakkningu í bílnum mínu

PostPosted: Fri 06. Aug 2010 14:11
by 98.OKT
Eins og topicið segir, vantar mig mann til að skipta um pakkninguna hjá mér.

Það sem ég veit að þarf að gera, er að lyfta vélinni aðeins, og slaka svo bitanum niður sem liggur þvert undir olíupönnuna.

Ég mun koma með pakkninguna og nýja olíu, og helst fá að aðstoða við þetta til að flíta fyrir, er b.t.w vanur bílaviðgerðum, en hef aldrei lyft upp neinum vélum, og kemst ekki í vélargálga :?

Ef einhver treystir sér í þetta, má sá hinn sami senda mér póst með ca. þeirri upphæð sem hann tekur fyrir þetta :)

kv.

Re: Vantar mann til að skipta um olíup.pakkningu í bílnum mí

PostPosted: Fri 06. Aug 2010 23:50
by 98.OKT
hmm, enginn sem treystir sér í þetta??

Re: Vantar mann til að skipta um olíup.pakkningu í bílnum mí

PostPosted: Sat 07. Aug 2010 00:01
by ///MR HUNG
Þetta er skíteinfalt ef þú færð að nota lyftu í vinnunni hjá þér.
Þarft ekki að lyfta mótornum,Það er nóg að stífa hann fastann á meðan þú tekur bitann undan.

Re: Vantar mann til að skipta um olíup.pakkningu í bílnum mí

PostPosted: Sat 07. Aug 2010 00:43
by 98.OKT
Ok. takk fyrir þetta, ég ætla að reyna að kíkja á þetta um helgina og sjá hvort ég ráði ekki við þetta.
Ég má nota lyfturnar eins og ég vil svo framalega sem það sé laugardagur :wink:

Re: Vantar mann til að skipta um olíup.pakkningu í bílnum mí

PostPosted: Sat 07. Aug 2010 00:48
by ///MR HUNG
Þá er þetta ekki mál.
Þegar þú ert búinn að losa mótorinn þá geturðu t.d sett langa spítu frá gólfi og upp í mótor og slakar lyftunni smá og þá ertu race ready.
Og það ætti að vera nóg að losa maskínuna frá bitanum (2 boltar) en ekki rífa hana alla undan.

Re: Vantar mann til að skipta um olíup.pakkningu í bílnum mí

PostPosted: Sat 07. Aug 2010 10:43
by 98.OKT
Takk kærlega fyrir þessar upplýsingar, ég hlýt að ná að klóra mig fram úr þessu :)

Re: Vantar mann til að skipta um olíup.pakkningu í bílnum mí

PostPosted: Sat 07. Aug 2010 12:58
by Axel Jóhann
Þetta er virkilega simple :)

Re: Vantar mann til að skipta um olíup.pakkningu í bílnum mí

PostPosted: Sat 07. Aug 2010 18:22
by 98.OKT
Já, ég fer á morgun að sækja pakkninguna sem ég var búinn að panta, og fer í þetta næstu helgi ef ég hef tíma, og vona það besta :)

Re: Vantar mann til að skipta um olíup.pakkningu í bílnum mí

PostPosted: Mon 09. Aug 2010 21:44
by 98.OKT
Var að sækja pakkninguna í dag, en ég hef eina spurningu.
Það er gúmmíkanntur á henni að innanverðu, og þeir í IH vildu meina að það þyrfti ekkert pakkningarlím á milli, en mér fannst þeir samt ekkert allt of vissir, auk þess er greinilega pakkningarlím á þessu núna original.
Svo ég var að spá hvort menn vissu pottþétt hvort ég þurfi pakkningarlím eða ekki???

Re: Vantar mann til að skipta um olíup.pakkningu í bílnum mí

PostPosted: Mon 09. Aug 2010 21:51
by crashed
ef það er gúmíkantur að innanverðu þá þarftu þess ekki, en hafðu hann samt blautan af olíu (eins og gert er við nýjar smursíur)

Re: Vantar mann til að skipta um olíup.pakkningu í bílnum mí

PostPosted: Mon 09. Aug 2010 22:37
by 98.OKT
Ok. takk fyrir þetta, ég skelli mér í þetta næstu helgi :)

Re: Vantar mann til að skipta um olíup.pakkningu í bílnum mí

PostPosted: Sat 14. Aug 2010 18:33
by 98.OKT
Núna er nýja pakkningin komin í og so far so good.

Þetta tók mig ca. 4,5 tíma og er ég bara sáttur með þetta þar sem ég hef aldrei áður gert neitt svona.
Maður þurfti að rífa hálfan bílinn í sundur :x ég tók einhverjar myndir og set þær kannski inná hjá mér í bílar meðlima :)