Page 1 of 1

Besta leiðin til að fá svarta plastlista svarta aftur?

PostPosted: Fri 06. Aug 2010 12:25
by HjorturG
Eruð þið með einhver ráð til að ná fram fyrri svertu í e36 plastlistum? Þeir eru ordnir svolítið gráleitir, og venjulegt "back to black" efni gerir þá nokkuð flotta en það endist frekar stutt. Einhver góð heimilisráð? Hvað er besta "back to black" efnið á markaðnum í dag?

Re: Besta leiðin til að fá svarta plastlista svarta aftur?

PostPosted: Fri 06. Aug 2010 12:29
by GunniT
Nota bara hitabyssu á þá, verða alveg eins og nýjir :thup:

Re: Besta leiðin til að fá svarta plastlista svarta aftur?

PostPosted: Fri 06. Aug 2010 12:52
by HjorturG
GunniT wrote:Nota bara hitabyssu á þá, verða alveg eins og nýjir :thup:


Já hafði heyrt um það með svarta plaststuðara, hélt það væri kannski eitthvað öðruvísi plast en í þessum listum.. en ég prófa það og gáum hvernig það gengur! :thup:

Re: Besta leiðin til að fá svarta plastlista svarta aftur?

PostPosted: Fri 06. Aug 2010 12:54
by Maggi B
Farðu bara varlega, það er mjög auðvelt að brenna plastið með svona byssu

Re: Besta leiðin til að fá svarta plastlista svarta aftur?

PostPosted: Sat 07. Aug 2010 03:13
by T-bone
Ættir líka að geta nuddað þá upp úr aceton...

Re: Besta leiðin til að fá svarta plastlista svarta aftur?

PostPosted: Sat 07. Aug 2010 10:35
by bErio
Hitabyssa!
youtubeit

Re: Besta leiðin til að fá svarta plastlista svarta aftur?

PostPosted: Sat 07. Aug 2010 11:45
by Jón Ragnar
Ég og Anna notuðum e-ð svaka fínt Toyota spray á listana hjá mér, voru mjög góðir frekar lengi :)

Re: Besta leiðin til að fá svarta plastlista svarta aftur?

PostPosted: Sat 07. Aug 2010 12:41
by 98.OKT
Svo er til mjög öflugt efni í Málningarvörum sem heitir VISTA, það er eitt það besta sem hægt er að setja á listana. Gerir þá eins og nýja, og endist mjög lengi, enda verður nánast að massa þetta efni af ef þetta fer á lakk og nær að þorna :o

Re: Besta leiðin til að fá svarta plastlista svarta aftur?

PostPosted: Sat 07. Aug 2010 13:40
by HjorturG
Tók hitabyssutrickið á þá, þvílíkur munur! Þeir eru eins og nýir aftur bara, mæli með þessu :thup:

Re: Besta leiðin til að fá svarta plastlista svarta aftur?

PostPosted: Thu 12. Aug 2010 12:54
by Thrullerinn
Gaurarnir í plastviðgerðum fyrir neðan BYKO í kóp geta líka málað þetta upp á nýtt.
Lét mála ristina í framstuðaranum, rúðuðissgaurana o.fl. o.fl. og það kom alveg gríðarlega vel út!

Re: Besta leiðin til að fá svarta plastlista svarta aftur?

PostPosted: Fri 13. Aug 2010 10:58
by Kwóti
98.OKT wrote:Svo er til mjög öflugt efni í Málningarvörum sem heitir VISTA, það er eitt það besta sem hægt er að setja á listana. Gerir þá eins og nýja, og endist mjög lengi, enda verður nánast að massa þetta efni af ef þetta fer á lakk og nær að þorna :o

ætlaði einmitt að benda á þetta, gríðarlega gott efni