Page 1 of 1

Miðstöðin hætt að virka

PostPosted: Wed 28. Jul 2010 21:41
by SteiniDJ
Heilir og sælir,

Miðstodin í bílnum mínum (E46 320ci) er farin að haga sér illa. Hun blæs ekki þegar loftkælingin er í gangi en sáa þegar hún er ekki á. Það breytir engu hvaða hraðastillingu ég set þetta á og eru öll öryggi virðast heil. Er mótorinn farinn?

Takk

Re: Midstodin ordin eitthvad foj ut i mig

PostPosted: Wed 28. Jul 2010 22:02
by rockstone
hugsanlega viðnám í hraðastillingunni farin?

Re: Midstodin ordin eitthvad foj ut i mig

PostPosted: Wed 28. Jul 2010 22:04
by SteiniDJ
Ekki viss hvernig tetta virkar, en svo tad se a hreinu ta er tetta stafraen midstod. :)

Re: Miðstöðin hætt að virka

PostPosted: Thu 29. Jul 2010 11:05
by SteiniDJ
Búinn að laga póstinn.

Nú ætla ég að taka séns á að skjóta mig í fótinn og spyrja: getur svona mótor einfaldlega dottið úr sambandi? Bílasali prófaði bílinn í gær og tók hann nokkuð hressilega á malarsvæði og það var þá sem ég tók fyrst eftir því að þetta virkaði ekki sem skyldi.

Getur verið að eitthvað hafi fests í mótornum sem kemur í veg fyrir að hann nái að snúast (ef svo, afhverju hættir hann þá alveg að blása ef ég set AC í gang?)?

Og, gæti einhver linkað á mig svona miðstöðvamótor í 2001 E46 320ci í gegnum Realoem? Mér gengur illa að finna hann þar.

Re: Miðstöðin hætt að virka

PostPosted: Thu 29. Jul 2010 12:06
by bfs
Lenti í svipuðu með E39 bíl. Ég skipti um Final Stage Unit (FSU) og miðstöðin hefur virkað fínt síðan. Veit ekki hvort þetta stykki sé í þínum bíl en tel það líklegt.

Ég notaði þessar leiðbeiningar til þess að skipta um þetta: http://www.540i6.com/finalstagereplacement.html

kv,
Bragi

Re: Miðstöðin hætt að virka

PostPosted: Thu 29. Jul 2010 12:58
by SteiniDJ
Kærar þakkir fyrir svarið, hef grun um að þetta sé sama vandamál og ég á við núna. Snillingarnir hjá eðalbílum ætla að bjarga þessu fyrir mig í dag. :)