Ég er með 1999 e39 540i sem er þokkalega sprækir og skemmtilegir bílar.
Hinsvega lætur minn ekki alveg eins og ég vildi. Hann er mjög "miskraftmikill", ef svo mætti segja. Ég var aðeins að tilraunast með þetta í gær og komst að því að hann er nokkuð snarpur í lágum snúningi, svo kemur millibil þar sem hann virðist missa svolítið aflið en svo þegar hann er kominn í mjög háa snúninga þá kickar krafturinn aftur aðeins inn.
Ég fór með bílinn í Eðalbíla einhverntímann og lét lesa af honum og náunginn sagði mér að bíllinn væri ekki að fá rétt hlutfall af lofti og bensíni. Sagði að bíllinn héldi að hann væri að fá meira loft en hann væri í raun að fá = er að fá of lítið loft.
Getur verið að ég þurfti bara að skipta um MAF sensor, eða loftflæðiskynjarann ?
ps. Félagi minn sat með mér sem á alveg eins bíl í toppstandi og hann tók eftir að þetta væri eitthvað skrýtið. Honum fannst bíllinn vera að missa of mikið afl og ekki eins snöggur og hann ætti að vera.


