Page 1 of 1

Vesen með að starta bíl / rafmagn.

PostPosted: Tue 20. Jul 2010 23:27
by MaggiGunn
Sælir,

Ég á eitt stykki 318' E46 en Það vill þannig til að þegar ég reyni að kveikja á bílnum
þá fer hann orðið stundum í gang og stundum ekki. Ég hélt að rafgeymirinn væri orðinn
þreyttur þannig ég keypti notaðan 2 mánaða gamlan (Varta D47 540 60Ah.12V) geymi
sem selst í N1. Hann er reyndar ekki jafn stór og sá sem ég var með en ég fékk þau
skilaboð að hann ætti að duga fínt.

Það var eins og þetta virkaði fínt í 1-2 daga, var með útvarpið, ljósin og allt í gangi í 15-20
mín án þess að hafa kveikt á honum og allt virkaði. En núna nokkrum dögum seinna þá er
ég að lenda í nákvæmlega sama vandamáli. Reyni að kveikja á bílnum en startast ekki,
reyni strax aftur og fer í gang? Núna í dag fór hann bara alls ekki í gang, en þegar ég tengdi
hann með startköpplum þá poppar hann aftur í gang eftir nokkrar tilraunir?

Mig grunaði að "startarinn" væri kannski farinn en þá skil ég ekki afhverju hann fer í gang
þegar ég tengi með köpplum?? er einhver sem gæti mögulega vitað hvað þetta er?

Kveðja Maggi.

Re: Vesen með að starta bíl / rafmagn.

PostPosted: Tue 20. Jul 2010 23:34
by gstuning
Láttu álags mæla geyminn hjá þér

Svo skaltu láta mæla straum leka þegar er ekki kveikt á bílnum.

Re: Vesen með að starta bíl / rafmagn.

PostPosted: Tue 20. Jul 2010 23:39
by crashed
svo getur þetta verið startarinn sem er að svíkja en þegar þú tengir kapla á bílinn að þá fær hann meiri straum sem hann gæti þurft þar sem hann er að klika

Re: Vesen með að starta bíl / rafmagn.

PostPosted: Tue 20. Jul 2010 23:48
by JOGA
Eins og Gunni segir ættir þú að láta álagsmæla geyminn til að ganga úr skugga um að hann sé í lagi. Næsta mál á dagskrá (ef hann er í lagi) ætti að vera að mæla hleðsluna með bílinn í gangi. Ef allt er eðlilegt ætti bíllinn að vera að hlaða á bilinu ca. 13,5-14,4 volt.
Ef þetta er mikið lægra en það er líklega alternator að klikka eitthvað. Best að slökkva ljós og á rafmagnstækjum í bílnum fyrst og biðja svo einhvern um að halda bílnum í hröðum hægagangi á meðan þú mælir.

Hef líka lent í því að léleg jörð veldur hellings vandræðum. Það fyrsta sem ég geri núna er að athuga bæði jartengingu frá geymi í boddý og frá boddý í vél.

Mér finnst líklegra að þetta sé eitthvað sem tengist hleðslu á geyminum eða slappri jarðtengingu miðað við þínar lýsingar.

Re: Vesen með að starta bíl / rafmagn.

PostPosted: Wed 21. Jul 2010 12:17
by MaggiGunn
Takk fyrir upplýsingar, ég ath. þetta. Finnst samt líka dáldið spes að þegar ég reyndi að starta
fyrst þá kom svona "tikk tikk tikk" hljóð þegar hann fór ekki í gang. Núna kemur ekkert hljóð,
en svo allt í einu poppar hann í gang.

En ég fer með hann og læt ath þetta!

Re: Vesen með að starta bíl / rafmagn.

PostPosted: Wed 21. Jul 2010 19:03
by JonFreyr
Láta skoða geyminn, tikkið sem þú heyrir er startarinn en hann fær ekki nægan straum til að snúa. Svo þori ég að veðja að ef þú heldur áfram að reyna, þá hættir tikkið því að geymirinn tæmist alveg. Bara svona það sem mér dettur í hug því ég var að enda við að standa í svipuðu með minn bíl :)

Re: Vesen með að starta bíl / rafmagn.

PostPosted: Thu 22. Jul 2010 00:20
by MaggiGunn
okok... þá hlýt ég að hafa keypt ónýtan geymi eða e-ð... samt alveg ónotaður nánast. Skrýtið.

Ég ætla að láta skoða þetta, takk fyrir allar upplýsingar.

Re: Vesen með að starta bíl / rafmagn.

PostPosted: Thu 22. Jul 2010 00:43
by ///MR HUNG
Ég lenti í þessu með einn sem fór bara í gang með köplum og málið var að + kapallinn frá geymi var ónýtur og leiddi ekki nægilega vel.

Re: Vesen með að starta bíl / rafmagn.

PostPosted: Thu 22. Jul 2010 04:21
by oddur11
ég ætla að giska á altinatorinn eða lélegt samband til startara, lendi stundum í þvi á e30 að það gerist ekkert þegar ég sný lykklinum, nema ég haldi honum inni og sparki í sílsan á bílnum, til að hreifa eithvað, fataði svo seina að það var bara ró fyrir +á startaranum sem var laus. hefur ekki klikkað síðan ég púsaðu upp pólana og herti róna :D

Re: Vesen með að starta bíl / rafmagn.

PostPosted: Fri 23. Jul 2010 08:57
by apollo
oddur11 wrote:ég ætla að giska á altinatorinn eða lélegt samband til startara, lendi stundum í þvi á e30 að það gerist ekkert þegar ég sný lykklinum, nema ég haldi honum inni og sparki í sílsan á bílnum, til að hreifa eithvað, fataði svo seina að það var bara ró fyrir +á startaranum sem var laus. hefur ekki klikkað síðan ég púsaðu upp pólana og herti róna :D



Hahaha :D

En annars þá lenti ég í samahlutnum með einhvern bíl, þa var startarinn ordin það þungur að hann séri bara ef hann fékk extra kikk, skifti um startara og allt jákvætt

Re: Vesen með að starta bíl / rafmagn.

PostPosted: Wed 28. Jul 2010 21:05
by MaggiGunn
Hvert mynduð þið mæla með að ég færi með að láta kíkja á þetta? T.d. álagsmæla geyminn og ath. straum frá kapal og í geymi?

Kveðja Maggi

Re: Vesen með að starta bíl / rafmagn.

PostPosted: Thu 29. Jul 2010 18:21
by Ívarbj
MaggiGunn wrote:Hvert mynduð þið mæla með að ég færi með að láta kíkja á þetta? T.d. álagsmæla geyminn og ath. straum frá kapal og í geymi?

Kveðja Maggi


Flest öll hraðþjónustuverkstæði ættu að bjóða uppá þetta, T.d. Max1.

Re: Vesen með að starta bíl / rafmagn.

PostPosted: Thu 29. Jul 2010 22:18
by Geirinn
Búinn að athuga hvort að það sé ostborgari í bensíntanknum hjá þér ? :santa:

http://www.dv.is/frettir/2010/7/29/ostborgari-og-sur-gurka-i-bensintanki/

Re: Vesen með að starta bíl / rafmagn.

PostPosted: Thu 29. Jul 2010 22:20
by Bjössi
Geirinn wrote:Búinn að athuga hvort að það sé ostborgari í bensíntanknum hjá þér ? :santa:

http://www.dv.is/frettir/2010/7/29/ostborgari-og-sur-gurka-i-bensintanki/


enda er það oftar en ekki orsökin þegar rafmagnsvandamál eru annars vegar

Re: Vesen með að starta bíl / rafmagn.

PostPosted: Thu 29. Jul 2010 22:24
by Geirinn
Bjössi wrote:
Geirinn wrote:Búinn að athuga hvort að það sé ostborgari í bensíntanknum hjá þér ? :santa:

http://www.dv.is/frettir/2010/7/29/ostborgari-og-sur-gurka-i-bensintanki/


enda er það oftar en ekki orsökin þegar rafmagnsvandamál eru annars vegar


:)