bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Bimminn minn farinn í fílu? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=4582 |
Page 1 of 1 |
Author: | poco [ Tue 17. Feb 2004 20:59 ] |
Post subject: | Bimminn minn farinn í fílu? |
Í dag eftir vinnu lagði ég af stað á geimsteininum mínum (523 E39 ´97) þá virkaði ekki mælaborðið. Engin gaumljós og engin hreyfing á mælum. Ég hélt (og vill taka fram að ég er idíod á bíla) að það væri kanski farið öryggi eða e-ð. Fann öryggin í hanskahólfinu og þessa frælsniðugu leiðbeiningar um hvað væri hvað Á ÞÝSKU. Ég skil ekki orð í þýsku þ.a. að ég gafst upp, fór inn í rúm og grenjaði mig í svefn ![]() En svo skrapp ég út áðan og þá var allt komið í lag eins og ekkert hafði gerst. Kannast e-r við þetta og ef svo what the f*** var að gerast? Er kanski e-ð öryggið orðið tæpt eða var hann bara í fílu út í mig eins og gengur og gerist í öllum ástarsamböndum? ![]() |
Author: | Svezel [ Tue 17. Feb 2004 21:21 ] |
Post subject: | |
Er nokkuð mjög lítið bensín á honum? Það gerðist hjá mér einu sinni á E39 bílnum, þegar hann var orðinn mjög bensínlítill, að það virkuðu engir mælar er ég ætlaði að keyra út á bensínstöð. Svo var allt í lagi þegar ég setti aftur í gang eftir að hafa tekið bensín. |
Author: | Bjarki [ Wed 18. Feb 2004 00:37 ] |
Post subject: | |
Á þessari síðu má finna mikið að góðum upplýsingum um e39: http://bmwtips.com/ M.a. owners manual á ensku reyndar sá elsti frá 2000 en þú ferð þá ansi langt á honum. Þetta var vandamál í gömlu (gömlu) fimmunum e34 og líka í e32 en til að laga það þá dugar að skipta um nokkra þétta. Reyndar a.m.k. tvær útgáfur af mælaborðum í þeim bílum. Gerðist stundum á gömlu sjöunni minni en hætti algjörlega eftir að ég skipti um þessa þrjá þétta. Man að frændi minn sem kaupir alltaf nýja BMW hjá umboðinu lenti í þessu vandamáli með 520i bílinn sinn. Hann var alltaf að fara með hann á verkstæðið en þeir fundu ekki út úr neinu, klóruðu sér bara í hausnum og stungu upp á því að kaupa nýtt mælaborð $$$. En vandamálin eru til þess að leysa þau. En ég hef aldrei lesið neitt um dauða mæla í e39. |
Author: | Haffi [ Wed 18. Feb 2004 01:30 ] |
Post subject: | |
þegar hann er rafmagnslítill þá slökknar venjulega á mælaborðinu og fleiru. |
Author: | poco [ Wed 18. Feb 2004 08:09 ] |
Post subject: | |
Ekki var það vegna bensínleysis, hann er fullur af gæðaeldsneyti. Rafmagnleysi? Þó að mælaborðrið væri dautt þá var allt annað í góðu lagi þ.e. lýsingin á mælunum, útvarp og önnur ljós??? Og svo var ég búinn að fara í gegnum owners-manual á bmwtips.com, en vandamálið mitt er að hafa sofið í þýskutímum því annars gæti ég fundið öryggið sem gæti átt við og tékk að hvort það væri e-ð þreytt. |
Author: | arnib [ Wed 18. Feb 2004 09:04 ] |
Post subject: | |
Gáðu hvort þú finnur merkinguna "SI". Mig minnir að það sé þýsk skammstöfun fyrir mælaborð. |
Author: | BMW_Owner [ Wed 18. Feb 2004 19:03 ] |
Post subject: | |
það var einn 750ia 1988 sem ég vissi um og hann var eitthvað svo stressaður að alltaf þegar hann fór í gang þurfti að banka í mælaborðið því allir mælar fóru í botn ![]() ![]() ![]() kv.BMW_Owner ![]() |
Author: | Bjössi [ Sun 22. Feb 2004 02:19 ] |
Post subject: | |
Þetta hefur gerst í bílnum hjá mömmu, 2002 e39 530i, svo var bara drepið á bílnum kveikt á honum aftur og þetta hefur aldrei komið aftur |
Author: | zazou [ Tue 24. Feb 2004 01:10 ] |
Post subject: | Offtópik |
Bjössi wrote: Björn
Jaguar XJ árg. 78 Naunau, annar ![]() Er þetta rauði lumpaði bíllinn? |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |