Page 1 of 1

e46 hægagangs vesen!

PostPosted: Sat 10. Jul 2010 17:40
by GPE
Sælir , ég er með e46 318i 2000, og hægagangurinn er að stríða mér. Hægagangurinn á það til að detta niður í 500-600 snúninga úr 900 snúningum. Fór í EðalBíla og lét lesa af honum en ekkert kom í ljós. Þetta gerist oftast þegar bíllinn er mjög heitur, ef það skiptir einhverju. Allar upplýsingar vel þegnar..

-EðalGunni

Re: e46 hægagangs vesen!

PostPosted: Sat 10. Jul 2010 18:24
by Dóri-
vacuum leki. myndi tékka á membrunni fyrir öndunina á mótornum, hún er svona hringlaga og er svona hægramegin fyrir aftan soggreinina.

nr. 1 á þessari mynd

http://www.realoem.com/bmw/showparts.do ... fg=15&hl=2



svo er það slanga nr. 17 á þessari mynd, hún getur verið moknuð

http://www.realoem.com/bmw/showparts.do ... g=13&fg=15

hef lent í veseni með báða þessa hluti, þessi efri var vandfundinn að sé bilaður en fremst á honum er lítið gat undir svona eiginlega skyggni ef að þú úðar t.d. carb cleaner þar og það breytist gangurinn þá er það það.