Page 1 of 1

Setja 6 cyl. vél í 4.cyl. e46

PostPosted: Sun 04. Jul 2010 12:49
by 98.OKT
Sælir,

ég er kominn með þá flugu í hausinn að skipta um vél í bílnum hjá mér þar sem 4. cyl. er ekki að gera sig til lengdar.
En stóra spurningin er, þarf ég að skipta út öllu rafkerfinu, og get ég notað sömu skiptingu og drif??

Ég held að bremsurnar séu nógu góðar þar sem þær eru mjög öflugar fyrir, en svo er það auðvitað spurning með mótorfestingarnar....

En þetta eru allt bara pælingar og draumórar, en aldrei að vita hvað maður gerir ef það þarf ekki að skipta öllu draslinu út :)

kv.

Re: Setja 6 cyl. vél í 4.cyl. e46

PostPosted: Sun 04. Jul 2010 19:22
by bErio
Held að enginn hafi farið í swap í E46 hér á landi.. ef ég fer rétt með

Re: Setja 6 cyl. vél í 4.cyl. e46

PostPosted: Mon 05. Jul 2010 12:27
by 98.OKT
Já ég held það geti verið rétt hjá þér, hef allavega ekki heyrt af því.

En spurning hvort það viti ekki einhver hvort ég geti notað sömu skiptingu aftur :o

Re: Setja 6 cyl. vél í 4.cyl. e46

PostPosted: Mon 05. Jul 2010 13:31
by Zed III
google is your friend, my friend.

um að gera að prófa líka bimmerforums

Gætu orðið leiðindi með tölvu og ræsivörn.

Re: Setja 6 cyl. vél í 4.cyl. e46

PostPosted: Mon 05. Jul 2010 18:41
by JonHrafn
Það er alltaf best með vélarskipti að fá bíl í slátur, og geta flutt allt á milli sem þarf. Myndi aldrei detta í huga að gera þetta öðruvísi en að hafa vél, skiptingu, allt rafloomið og mælaborð.

Re: Setja 6 cyl. vél í 4.cyl. e46

PostPosted: Tue 06. Jul 2010 00:12
by agustingig
Seldu þinn og kauptu annan,, lentum í þessu með mustang,, þarf að skipta um allt frá framljósum að afturljósum,, vorum heppilega að spaða annan ofaní en þú ert ekkert að fara finna 6cyl e46 í slátur held ég,, keyptu þér bara 330i eða eitthvað, mjög skemmtilegir bílar. :thup:

Re: Setja 6 cyl. vél í 4.cyl. e46

PostPosted: Tue 06. Jul 2010 00:15
by Aron Andrew
Nonni á einhverja 6 cyl e46 mótora

Re: Setja 6 cyl. vél í 4.cyl. e46

PostPosted: Tue 06. Jul 2010 01:42
by ///MR HUNG
Getur ekki notað sömu skiptingu en þetta er voða einfalt að gera þar sem það er sami vatnskassi,Mótorbiti og hellingur af öðrum hlutum sem þú notar áfram.
Rafkerfið er bara plug and play og út að spóla.

Re: Setja 6 cyl. vél í 4.cyl. e46

PostPosted: Tue 06. Jul 2010 01:47
by srr
///MR HUNG wrote:Getur ekki notað sömu skiptingu en þetta er voða einfalt að gera þar sem það er sami vatnskassi,Mótorbiti og hellingur af öðrum hlutum sem þú notar áfram.
Rafkerfið er bara plug and play og út að spóla.

Maður sér ekki neitt af E46 spólandi hérna á Íslandi.
Þorir enginn að taka á þessu ? :lol:

Re: Setja 6 cyl. vél í 4.cyl. e46

PostPosted: Tue 06. Jul 2010 01:54
by kalli*
srr wrote:
///MR HUNG wrote:Getur ekki notað sömu skiptingu en þetta er voða einfalt að gera þar sem það er sami vatnskassi,Mótorbiti og hellingur af öðrum hlutum sem þú notar áfram.
Rafkerfið er bara plug and play og út að spóla.

Maður sér ekki neitt af E46 spólandi hérna á Íslandi.
Þorir enginn að taka á þessu ? :lol:


Ég veit alveg um einn. 8)

Re: Setja 6 cyl. vél í 4.cyl. e46

PostPosted: Tue 06. Jul 2010 06:34
by Alpina
Það er ekki LSD í E46,,

og ég tel ekki að það sé vit í þessu nema vélin sé úrbrædd osfrv

eins og einn tók farm,, seldu þetta og fáðu þér 330 ,,,,,,,,,, fanta power þar á bæ

Re: Setja 6 cyl. vél í 4.cyl. e46

PostPosted: Tue 06. Jul 2010 11:13
by 98.OKT
Já það er auðvitað alltaf best bara að kaupa sér annan bíl, en verðið á facelift 325 eða 330 er það mikið hærra en á 4.cyl. bílunum, að ef þetta er eins auðvelt og Nonni vill meina, þá getur það vel borgað sig að fara bara í svona swap.

Enda er ég það ánægður með minn bíl útlitslega séð, auk þess sem hann er það vel búinn að mig langar helst að eiga hann áfram. Eina sem vantar er meira afl.

Svo er minn mótor mjög góður og lítið ekinn og skiptingin góð, þannig að ég get alltaf selt það til að fá uppí kostnað :wink:

En eins og ég segi að þá eru þetta allt bara pælingar ennþá, en ef maður dettur niður á góðann pakka á ásættanlegu verði, þá er aldrei að vita hvað maður gerir :)