Page 1 of 1

hjálp

PostPosted: Sat 03. Jul 2010 03:02
by DEBOO
mér vantar hjálp frá ykkur snillingunum hérna á kraftinum. er með bmw 740 1995, ég læsti bílnum með takkanum á lyklinum, núna get ég ekki opnað bílinn, lykilinn virkar ekki þótt að það kemur ljós á takkanum og ekki heldur á hurðina og skottlokið(skráagötinn). hvað er hægt að gera?? :)

Re: hjálp

PostPosted: Sat 03. Jul 2010 09:17
by Danni
Þú þarft að komast inn í bílinn, annað hvort inn í farþegarýmið og opna húddið og gefa bílnum start þaðan og taka síðan úr lás eða inn í skott og tengja beint við rafgeyminn.

Það er ap segja ef hann er rafmagnslaus, sem ég tel allar líkur á.

Re: hjálp

PostPosted: Sat 03. Jul 2010 10:09
by slapi
Virkar ekki að snúa lyklinum alveg counterclockwise í hurðinni , kemur eitt pall í viðbót og toga í hurðarhúninn á meðan ?

Re: hjálp

PostPosted: Sat 03. Jul 2010 15:24
by DEBOO
bíllinn er ekki rafmagnslaus og ég get ekki opnað með lyklinum, annaðhvort passar hann ekki við skrána eða stendur einhvað á sér, sama með skottlokið. ég fékk mann til að opna rúðurnar í bílnum. bíllinn vill ekki fara úr lás þá ég reyni að opna hann innan frá.

Re: hjálp

PostPosted: Sat 03. Jul 2010 22:11
by bubbim3
ég held að kóðinn í lyklinum sé eitthvað að klikka

Re: hjálp

PostPosted: Mon 05. Jul 2010 13:36
by sosupabbi
ég held að batteríið í fjarstýringunni sé orðið lélegt, kemur alltaf rautt ljós hjá mér en ég þarf stundum að ýta svona 10x til að það opnist og það stendur einmitt remote battery low eða eh í mælaborðinu, annars er þetta mega pirrandi að það virki ekki að snúa bara helvitis lyklinum

Re: hjálp

PostPosted: Thu 08. Jul 2010 01:52
by ViggiRS
Það er nýr rafgeymir í þessum bíl og nýtt battery í lyklinum.....

Re: hjálp

PostPosted: Thu 08. Jul 2010 02:17
by DEBOO
bíllinn er ekki rafmagnslaus, ja eg er´líka búin að skipta um battery í fjarsteringunni en ekkert skeður, hann er bara fastur læstur, talaði við eðalbíla og þeir þurfa fara í tölvunna í bílnum

Re: hjálp

PostPosted: Thu 08. Jul 2010 18:58
by Axel Jóhann
Prófaðu að öskra á hann og sparka í dekkið h/m aftan. Ef það gengur ekki, ÞÁ FYRST ERTU VIRKILEGA Í VONDUM MÁLUM.