by JOGA » Thu 24. Jun 2010 22:11
Hef ekki reynslu af þeim né þekki til þeirra.
En þetta er nokkuð þekkt erlendis. Hef líka séð viðgerð eftir svona hér heima fyrir mörgum árum. Veit ekki hvort um sama aðila er að ræða.
Það sem ég hef séð kemur ótrúlega vel út. Fer eftir beyglum eins og bent hefur verið á samt.
Þeir nota í þetta einhver "spes" verkfæri og það var í það minnsta þjálfaður aðili í þessu hérna heima einu sinni. Þ.e. lærði þetta sérstaklega úti.
Þetta er að mörgu leiti sniðugt, sleppur við sprautun með tilheyrandi kostnaði og tíma sem það tekur. Einnig ágætt að losna við áhættuna á lita- og eða áferðarmun þó að auðvitað sé það ekki algilt.
En held að aðal málið sé að þetta er misjafnt eftir staðsetningum og umfangi dældarinnar. Ef þetta er nálægt broti í boddýinu þá er þetta víst oft erfitt. Einnig skiptir víst máli hvernig aðkoman er að þessu. Hvort auðvelt sé að komast aftur fyrir dældina.
Held að það sé í raun ekkert til fyrirstöðu að prófa þetta ef verðin eru í lagi.
Vera svo bara gagnrýnin á vinnuna þegar þú tekur við bílnum. Ef þú ert ekki sáttur þá benda á það strax ef mögulegt.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir