

Var að sækja blokkina sem ég ætla að nota í turbo frá renniverkstæði sem var að bora fyrir olíuspíssum eins og er í e23 745i, fór svo með blokkina í hónun og láta taka 0,3mm ofan af henni. Uppæðin fyrir borverkið var svimandi há, en núna á ég bormót sem boltast yfir höfuðleguklafana og því auðvelt mál að bora fyrir fleiri aðila gegn vægu gjaldi ef einhverjir eru í svipuðum pælingum.

