Page 1 of 2

Sæti án loftpúðaskynjara í E36

PostPosted: Thu 17. Jun 2010 22:48
by gunnar
Mig vantar smá aðstoð.

Ég er að setja leður í E36 hjá mér og þau sæti eru ekki með þessum airbag sensor stöffi eins og sætin sem voru í bílnum hjá mér fyrir.

Get ég einhvern veginn blöffað þetta. Þessi skynjari í raun og veru ákveður bara hvort loftpúðinn eigi að springa út eftir því hvort það sitji einhver í sætinu eða ekki skilst mér.

Fann unit á netinu sem ég gæti notað en það segir mér eitthvað að þetta þurfi ekki að vera svona dýrt..

http://cgi.ebay.ie/ws/eBayISAPI.dll?Vie ... K:MEWNX:IT

Eða get ég jafnvel fært þetta á milli? Þarf þá væntalega að færa alla sætisbelta festinguna og allt unitið með?

Re: Sæti án loftpúðaskynjara í E36

PostPosted: Thu 17. Jun 2010 22:52
by Alpina
gunnar wrote:Mig vantar smá aðstoð.

Ég er að setja leður í E36 hjá mér og þau sæti eru ekki með þessum airbag sensor stöffi eins og sætin sem voru í bílnum hjá mér fyrir.

Get ég einhvern veginn blöffað þetta. Þessi skynjari í raun og veru ákveður bara hvort loftpúðinn eigi að springa út eftir því hvort það sitji einhver í sætinu eða ekki skilst mér.

Fann unit á netinu sem ég gæti notað en það segir mér eitthvað að þetta þurfi ekki að vera svona dýrt..

http://cgi.ebay.ie/ws/eBayISAPI.dll?Vie ... K:MEWNX:IT

Eða get ég jafnvel fært þetta á milli? Þarf þá væntalega að færa alla sætisbelta festinguna og allt unitið með?


Ok,, en ef bíllinn lendir í árekstri osfrv,, og hægt er að rekja þetta til þessarar aðgerðar,, þeas bíllinn er oem með airbag en ekki í þessu tilfelli ???

Re: Sæti án loftpúðaskynjara í E36

PostPosted: Thu 17. Jun 2010 22:57
by gunnar
Held það sé meira þannig að ef bíllinn lendir í árekstri með loftpúðaskynjarann og það situr enginn í farþegasætinu þá springur púðinn ekki út.

En án skynjara þá springur púðinn alltaf út hvort sem það situr einhver í sætinu eða ekki.

Get ekki ímyndað mér að tryggingarnar myndu átta sig á því.. Né að það skipti máli,

Það er nátturulega bara minn hausverkur ef púðinn springur út ef hann "þarf" þess ekki. Þ.e.a.s enginn farþegi.

Re: Sæti án loftpúðaskynjara í E36

PostPosted: Thu 17. Jun 2010 22:59
by Alpina
gunnar wrote:Held það sé meira þannig að ef bíllinn lendir í árekstri með loftpúðaskynjarann og það situr enginn í farþegasætinu þá springur púðinn ekki út.

En án skynjara þá springur púðinn alltaf út hvort sem það situr einhver í sætinu eða ekki.


Get ekki ímyndað mér að tryggingarnar myndu átta sig á því.. Né að það skipti máli,

Það er nátturulega bara minn hausverkur ef púðinn springur út ef hann "þarf" þess ekki. Þ.e.a.s enginn farþegi.


AHA ,, ég skil ... það var þetta sem ég var að spá í

Re: Sæti án loftpúðaskynjara í E36

PostPosted: Fri 18. Jun 2010 09:37
by gardara
Ég er akkúrat í sömu vandræðum...

Það er spurning hvort það sé ekki bara hægt að tengja bara saman + og -. Eða mig grunar að þessi blöffer virki bara á þann máta.

Annars er líka spurning hvort hr x eða gunni gstuning gætu ekki bara græjað þetta með því a krukka í tölvunni... En það er líklegast óþarflega kostnaðarsamt ef ekkert annað á að gera við bílinn.

Re: Sæti án loftpúðaskynjara í E36

PostPosted: Sat 19. Jun 2010 09:27
by gunnar
Já mér finnst voðalega hæpið að þetta þurfi að vera mega flókið.

Ætla leita í kvöld og sjá hvort maður finni ekki DYI að þessu.

Re: Sæti án loftpúðaskynjara í E36

PostPosted: Sat 19. Jun 2010 09:38
by gardara
gunnar wrote:Já mér finnst voðalega hæpið að þetta þurfi að vera mega flókið.

Ætla leita í kvöld og sjá hvort maður finni ekki DYI að þessu.



Do Your Itself?

Re: Sæti án loftpúðaskynjara í E36

PostPosted: Sat 19. Jun 2010 18:44
by gunnar
gardara wrote:
gunnar wrote:Já mér finnst voðalega hæpið að þetta þurfi að vera mega flókið.

Ætla leita í kvöld og sjá hvort maður finni ekki DYI að þessu.



Do Your Itself?


Jebb, það er það nýjasta í dag.. :lol:

Re: Sæti án loftpúðaskynjara í E36

PostPosted: Sun 30. Jan 2011 12:09
by gunnar
Ætla að endurvekja þennan þráð aðeins, hef ekki græjað neina lausn á þessu ennþá.

Eru menn með einhverjar snjallar hugmyndir.. :thup:

Re: Sæti án loftpúðaskynjara í E36

PostPosted: Sun 30. Jan 2011 12:27
by gunnar
Hér virðist einn hafa leyst svona vandamál (reyndar tímabundið hjá sér þar sem hann pantaði annan skynjara)

http://www.unitedbimmer.com/forums/e36/ ... ensor.html

Hann vísar í þráð - http://web.archive.org/web/200502140607 ... caros.html

Þar er þetta sýnt nema það vantar myndina akkúrat. Þyrfti svo bara að fá svona ónýtan skynjara, eða klippa úr öðru sæti.

Re: Sæti án loftpúðaskynjara í E36

PostPosted: Sun 30. Jan 2011 12:36
by gunnar
Er einhver hérna inni sem getur útbúið svona fyrir mig ?

Image

Re: Sæti án loftpúðaskynjara í E36

PostPosted: Sun 30. Jan 2011 12:50
by slapi
Versta við þessa lausn er að hann sýnir að það sitji enginn í sætinu ( annars eru allar þessar töfralausnir þannig)

Það myndi ég aldrei setja í bílinn minn

Spurning um að skipta um mottuna bara?

Re: Sæti án loftpúðaskynjara í E36

PostPosted: Sun 30. Jan 2011 12:58
by gunnar
Nei er það ekki öfugt,

Ég túlkaði þetta þannig að þetta sýni að það sitji alltaf einhver í sætinu og því sprengir þetta púðann hvort sem það situr einhver í því eður ei,

Skynjarinn er eingöngu til þess að segja tölvunni hvort það sitji einhver í sætinu og hvort hann eigi eða eigi ekki að sprengja púðann út. En þar sem þetta er orðinn háaldraður bíll þá er það alveg í lagi ef hann vill sprengja farþegasætispúðann.

Og vandamálið er líka það að það eru engar mottur í þessum sætum sem ég er með í bílnum, setti leðursæti úr bíl sem er ekki með þetta system í. Það er nú eiginlega rót vandamálsins.

Re: Sæti án loftpúðaskynjara í E36

PostPosted: Sun 30. Jan 2011 13:12
by slapi
Það er allaveganna ekki mín reynsla af þessum systemum.

Re: Sæti án loftpúðaskynjara í E36

PostPosted: Sun 30. Jan 2011 14:03
by gunnar
Eittthvað til í að útskýra það fremur ?

Samkvæmt því sem ég hef lesið þá vilja menn meina að þetta sé þannig að púðinn springi alltaf út, en ég auðvitað get ekki fært nein frekari rök fyrir því..

Þessir skynjarar hafa verið að bila mikið, þeir eru dýrir og menn hafa verið að kaupa þessa by-pass módula grimmt.