Sælir, það er kominn tími á smurningu á bílnum hjá mér. Geri það venjulega sjálfur en var að lesa góða hluti um kvikk fix hér í einum þræðinum. Þar sem mig vantar líka að láta umfelga og skipta um eitt bremsurör þá var ég að spá í að láta þá bara græja það í leiðinni þar sem maður hefur takmarkaðan tíma þessa dagana.
Hefur e-r reynslu af slíkum vinnubrögðum hjá þeim? þ.e.a.s umfelgun og bremsuröraskipti...
