Page 1 of 1

3 villur í mælaborði, afhverju ?

PostPosted: Tue 01. Jun 2010 12:56
by geirisk8
Sælir, ég er með e39 540i 1999 módel og það komu upp 3 villumerki í mælaborðinu í morgun. Þær hafa komið áður og yfirleitt hverfa þær ef maður drepur á bílnum, tekur lykilinn úr og startar síðan aftur.

Merkin þrjú eru:
-DSC (spólvörn, stöðugleikakerfi)
-Upphrópunarmerki inni í hring sem er gult
-ABS merkið

Núna vilja merkin ekki hverfa. Hvað er í gangi ?

Ég er með forrit sem getur leiðrétt alveg slatta af villum í tölvubúnaði bílsins, sem ég mun prófa en ef einhver veit hvað veldur þessarri villu þá má hann endilega segja mér það!

Re: 3 villur í mælaborði, afhverju ?

PostPosted: Tue 01. Jun 2010 12:58
by Einarsss
myndi giska á eitthvað tengt ABS skynjaranum hjá þér, um að gera að láta lesa af honum hjá Eðalbílum eða umboðinu

Re: 3 villur í mælaborði, afhverju ?

PostPosted: Tue 01. Jun 2010 12:59
by Zed III
Abs skynjari ef þú ert heppinn.

Abs tölvan ef þú ert það ekki.

Best að fara í aflestur með bílinn í alvöru tölvu.

Re: 3 villur í mælaborði, afhverju ?

PostPosted: Tue 01. Jun 2010 13:22
by Andri Fannar
Ég lenti í þessu um daginn í gríðarlegri rigningu, ég lagði bílnum upp í miklum halla og með stýrið alveg til vinstri.

Kveikti á honum og þá var þetta og öll kerfin úti, sömu villuboð og hjá þér.

Ég er reyndar með E46 en þetta eru líklega svipuð tækni bakvið þessi kerfi hjá okkur og hjá mér nægði að kveikja og slökkva og í P snúa stýrinu alla leið í báðar áttir og alveg fullbremsa á 50km+ og þá fór þetta. Fann þessa lausn á einhverju forumi og sel þetta alls ekki dýrara en ég keypti það :oops:

Þetta allavega reddaði mér og eftir það hefur þetta aldrei komið aftur.

Re: 3 villur í mælaborði, afhverju ?

PostPosted: Tue 01. Jun 2010 13:37
by geirisk8
Takk fyrir fljót svör! Ég kíki á þetta strax

Re: 3 villur í mælaborði, afhverju ?

PostPosted: Tue 01. Jun 2010 13:39
by oddur11
getur líka prufað að taka rafgeyminn úr sambandi í klukkutíma og prufað svo að starta honum

Re: 3 villur í mælaborði, afhverju ?

PostPosted: Tue 01. Jun 2010 13:52
by JOGA
Þetta kemur bara aftur ef af þetta er hreinsað út.
Mjög líklega ABS skynjari sem er á seinasta.

Gætir reyndar reynt að þrífa skynjaran þegar þú ert búinn að komast að því hvaða skynjari þetta er.
Fyrst þetta er að koma og fara GÆTI þetta verið vegna óhreininda þarna á milli (Á milli skynjara og "merkjahjóli")

Ég hef reyndar líka lennt í því að hjólið sem skynjarinn les af. Þ.e. tennurnar sem eru á hjólanafinu losnuðu af og þá náði skynjarinn ekki að lesa.


Nr. 1 = Fá aflestur, þar kemur fram hvaða skynjari þetta er eða ef þetta er eitthvað annað. Þá getur þú reynt að þrífa hann eða skipt bara um strax. Ekki það dýrt.

Re: 3 villur í mælaborði, afhverju ?

PostPosted: Wed 02. Jun 2010 18:14
by JonHrafn
oddur11 wrote:getur líka prufað að taka rafgeyminn úr sambandi í klukkutíma og prufað svo að starta honum


Mæli ekki með þessu! Ég lenti í að body computerið startaði sér ekki aftur eftir að ég discaði geymin, endaði í 20þús reikningi frá eðalbílum fyrir að laga fockið eftir mig.

Láttu bara lesa af bílnum og líklegast er þetta bara einn abs skynjari sem er lítið mál að skipta um.