Page 1 of 1

525ix - Þarf að komast inní afturhurðina. Sjálfa hurðina þ.e

PostPosted: Sat 29. May 2010 13:46
by dreamspy
Daginn

Ég er með bmw 525ix og er að reyna laga læsinguna í afturhurðinni. Ég er að reyna komast inní sjálfa hurðina og er búinn að losa mestmegnis af plötunni sem er innaná hurðinni, platan sem hurðaopnarinn er á og snúnings handfangið til að renna rúðunni upp og niður.

Það eru smellur á hliðinni sem var lítið mál að losa, bara togar í plötuna, en það virðist vera eitthvað í c.a. miðjunni á plötunni sem er ennþá fast við bílhurðina. Ég sé þó hvergi neinar skrúfur né neytt slíkt til að losa. Mér sýnist að þetta sé fast c.a á þeim stað þar sem handfangið innaná hurðinni er fest á plötuna, handfangið sem maður togar í þegar maður lokar hurðinni, en það hanfang virðist vera pikk fast.

Hefur einhver hugmynd um það hvernig ég myndi fara að því að losa þessa plötu?

kv
Frímann

Re: 525ix - Þarf að komast inní afturhurðina. Sjálfa hurðina

PostPosted: Sat 29. May 2010 14:01
by Dannyp
Lyftir hurðarspjaldinu upp, í átt að glugganum.
Skrúfar líka læsingarpinnann þarnaupp við gluggan af.

Re: 525ix - Þarf að komast inní afturhurðina. Sjálfa hurðina

PostPosted: Sat 29. May 2010 14:18
by dreamspy
Dannyp wrote:Lyftir hurðarspjaldinu upp, í átt að glugganum.
Skrúfar líka læsingarpinnann þarnaupp við gluggan af.


Ég gleymdi líka einni skrúfu, bakvið opnarann. Þá gékk þetta eins og í sögu.