Aðstoð við val á lækkunargormum [E36]

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Aðstoð við val á lækkunargormum [E36]

Postby JOGA » Fri 21. May 2010 10:05

Sælir sérfræðingar,

Er í smá vandræðum með að finna og velja rétta gorma í bílinn hjá mér.
Ég er með nýlega Sachs Super Touring dempara í bílnum. Þetta er 20% uprated frá orginal specum og því langar mig að fá flotta gorma með þessu. Nýta það sem er til staðar. Er að nota bílinn minn dagsdaglega allt árið og hef ekki verið of spenntur fyrir Coilover af þeim sökum. Þó það kitli smá.

Hef verið að skoða Eibach Pro kit. Lækkun er bara 30/30 en á að vera mjög flott fjöðrun halda svolítið í mýkt. Finnst bara 30/30 svolítið óspennandi lækkun. Hefði frekar viljað lækka aðeins meira að framan vs. aftan.

Eibach Sport kitið er víst lægra en sömuleiðis hastara o.s.frv.

Hef líka rekist á spennandi kost frá KW. Þar getur þú valið á milli nokkurra lækkunar möguleika. Finnst 50/20 svolítið spennandi.
Verður bíllinn alveg hundleiðinlegur í daglegum svona mikið lækkaður? Get ég notað Sachs demparana með þessu eða þarf styttri dempara fyrir þessa lækkun?

Hjálpið mér nú endilega skoða og skoða en get ekki ákveðið neitt :(

Væri líka til í myndir og dæmi um lækkun til að hjálpa mér að meta þetta.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Re: Aðstoð við val á lækkunargormum [E36]

Postby gunnar » Fri 21. May 2010 10:45

Núna er E36 bíllinn hjá mér lækkaður 60/40 og ég persónulega myndi ekki vilja keyra hann of mikið á veturna..

Held að ef ég ætti að velja mér lækkun þá yrði það 50/20(30) eða 40/20(30).
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: Aðstoð við val á lækkunargormum [E36]

Postby BirkirB » Fri 21. May 2010 17:20

60/40 KW undir mínum e36...keyri hann ekki á veturnar hér á Húsavík. Hvað þá á 15" felgum þannig að hann er aðeins lægri en á 18".
Jón Ragnar er með 60/40 lækkun undir sínum og hann notar hann á veturnar á 15" eða 16" felgum...
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Re: Aðstoð við val á lækkunargormum [E36]

Postby JOGA » Fri 21. May 2010 17:22

Hvað með ef ég fer í 50/20 eða 40/20. Þarf ég að vera með styttri dempara? Myndu mínir ganga?
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Re: Aðstoð við val á lækkunargormum [E36]

Postby gardara » Sun 23. May 2010 23:44

60/40 lækkun hérna megin, virkar fínt á reykjavíkurgötum allan ársins hring.
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: Aðstoð við val á lækkunargormum [E36]

Postby sosupabbi » Sat 29. May 2010 02:43

Ég er með einhverja orginal dempara að framan og sachs super touring að aftan og 60/60 Eibach lækkun í sjöunni, það er alveg fínt, ekkert hastur eða neitt, en ég nota hann ekki mikið á veturnar en hann dreif ágætlega að sögn fyrri eiganda, vonandi að þetta hjálpi eithvað þótt þetta sé ekki beint E36 sem ég er með :oops:
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 14 guests